Skákmótaröðin í Svíþjóð heldur áfram og þremenningarnir Vignir Vatnar Stefánsson, Aleksandr Domalchuk-Jonasson og Hilmir Freyr Heimisson eru allir mættir til leiks, hver í sínum styrkleikaflokki. Nú þegar fjórar umferðir eru búnar eru blikur á lofti um að þetta geti orðið frábært mót fyrir íslenska skákmenn – með góð úrslit og stöðuga frammistöðu frá öllum.

Vignir Vatnar hægt af stað í stórmeistaraflokknum

Í GM-flokknum hefur Vignir (2528) mætt sterkum andstæðingum og er með 2 vinninga af 4 mögulegum.

Á fyrsta degi í gær gerði hann fyrst jafntefli við Platon Galperin. Báðir tefldu hressilega en endataflið leið fyrir að mislitir biskupar voru á borðum og á endanum fjaraði skákin út og í jafntefli.

Vignir ætlaði sér greinilega sigur með svörtu gegn WGM Maili-Jade Ouellet í annarri umferð. Vignir tefldi kóngsindverja en lenti í vandræðum í miðtaflinu með illa staðsettan hrók á h6. Þessi hrókur varð svo að skiptamunstapi og kanadíska stelpan var vandanum vaxin í úrvinnslunni þrátt fyrir mikla baráttugleði hjá Vigni í vörninni…að vanda!

Dagurinn í dag gekk betur. Fyrst var það örjafntefli við Sivuk…þeirra þriðja innbyrðis skák á stuttum tíma.

Vignir fékk fyrsta sigurinn sinn í 4. umferð með svörtu gegn Rohan Talukdar (2362). Vignir fór í grunngildin og tefldi traustar, drottningarbragð, sem hefur gefist honum vel.

Lokaleikurinn var nettur, 29…Hc1+ taktískt bragð sem greinarhöfundur hefur kallað „Queen Sweep“ á engilsaxnesku þar sem hrókurinn sópar valdinu undan drottningunni. Svartur átti samt fallegt þvingað mát í 7 leikjum sem er ágætis æfing sem ég eftirlæt lesendum!

Aleksandr stöðugur og taplaus

Aleksandr Domalchuk-Jónasson (2357) hefur byrjað mótið með krafti í IM-flokknum. Bæði í gær og í dag kom 1,5 vinningur í hús af 2.

Fyrri skák gærdagsins vannst gegn Valcu, ungum Svía. Aleskandr var traustur í drottningarbragði með svörtu og riddari svarts á h7 kæfði allt sprikl í lokin.

Seinni skák gærdagsins var gegn FM Cederstam, öðrum heimamanni. Sá sænski tefldi skemmtilega og af krafti og var Sasha í miklum vandræðum, líklegast með tapað á köflum en náði að redda jafnteflinu.

Í dag var Sasha aftur með sigur með svörtu mönnunum í fyrri skákinni. Sasha ríf til sín rými snemma tafls og sótti á hvíta kónginn. Sóknin bar ávöxt þegar Kingsley lék af sér

28.Kh2?? var tapleikur en 28.fxg3 hefði þvingað endað í jöfnu endatafli.

Lengi vel var Rybka eitt af bestu skákforritum í heimi. Andstæðingur fjórðu umferðar, slóvakískur FM ber það nafn einmitt. Byrjanataflmennskan var kannski ekki í anda Rybku enda virtist Sasha vera vel undirbúinn og fá fínt tafl. Rybka fann hinsvegar leið til að ná þráskák í miðtaflinu og sverðin voru slíðruð.

 Sasha hefur 3 vinninga af 4 og mætir næst IM Berezjuk.

Hilmir Freyr mættur til leiks – og lætur til sín taka

Nýmættur og ferskur inn í mótaröðina er mættur IM Hilmir Freyr Heimisson (2350) og hann hefur strax sýnt lit.

Hilmir byrjaði á að mæta Rybka og þar kom eina jafnteflið hans hingað til. Merkilegt nokk tefldu þeir sömu byrjun og Rykba og Sasha tefldu í dag og Rybka því að ná góðum úrslitum með svörtu í þessari línu.

Hilmir tefldi upp á styrkleika biskupaparsins í seinni umferð gærdagsins. Það bar svo sannarlega ávöxt!

Í dag komu svo tvær sigurskákir. Fyrst pakkaði hann FM Marek Karas saman eftir að sá síðarnefndi missti mikilvægt miðborðspeð.

Hilmir sýndi svo mikla þolinmæði í seinni skák dagsins. Lúrði á biskupparinu í lokaðri stöðu þar sem teflt var í nokkra hringi með kallana þar til hvítur missti af taktík á d4-peðið og Hilmir kominn með nóg til að klára dæmið.

Skínandi byrjun hjá Hilmi sem hefur 3,5 vinning af 4 og skiljanlega efstur í flokknum.


Staðan eftir fjórar umferðir:

GM-flokkur (Vignir Vatnar Stefánsson)
2 vinningar af 4 – 1 vinningur, 1 tap, 2 jafntefli

IM-flokkur (Aleksandr og Hilmir Freyr)
Aleksandr: 3 vinningar af 4 – 2 v., 2 j.
Hilmir Freyr: 3 vinningar af 4 – 2 v., 1 j., 1 r.


Næstu skref

Fimmta og sjötta umferð fara fram á morgun, mánudag 5. maí, með áframhaldandi spennandi viðureignum. Mótið stendur fram á miðvikudag og ljóst er að íslensku keppendurnir munu berjast til síðasta manns.

- Auglýsing -