Vignir Vatnar Stefánsson vel einbeittur. — Ljósmynd/Ómar Óskarsson

Fimmta og sjötta umferð á mótaröðinni í Svíþjóð fóru fram mánudaginn 5. maí og má segja að íslensku keppendurnir hafi allir staðið sína nokkuð vel– að undanskildum viðureignum við ákveðinn tékkneskan IM sem reyndist okkar mönnum erfiður í IM-flokknum. Kíkjum á gang mála hjá Vigni (GM-flokkur), Aleksandr og Hilmi (IM-flokkur).

Vignir Vatnar ákveðinn!

Vignir náði góðum degi þar sem hann náði sér í sigur og traust jafntefli með svörtu.

Í fimmtu umferð lagði hann FM Jens Hirneise með hvítu í skák sem minnti á „vinnudag á skrifstofunni“. Vignir hafði snemma stjórn á skákinni en missti aðeins tökin…þó ekki alvarlega. Vignir vann skákina aftur í endataflinu.

Í sjöttu umferð kom svo fjórða viðureignin gegn GM Platon Galperin á skömmum tíma – og líkt og áður varð skákin að stuttu jafntefli.

Með 3,5 vinninga af 6 er Vignir í þriðja sæti í stórmeistaraflokknum. Sivuk og Galperin eru skrefi á undan, en með góðum endaspretti er allt enn opið.

Beresjuk leiðinlegur á þriðja keppnisdegi!

Þriðji keppnisdagurinn þróaðist með svipuðum hætti hjá Aleksandr og Hilmi. Báðir unnu þeir sigur gegn „minni spámönnum“ en töpuðu svo báðir fyrri tékkneska alþjóðlega meistaranum Sergei Beresjuk.

Beresjuk byrjaði á að leggja Sasha í 5. umferð. Beresjuk hafði hvítt og miðtaflið varð aðeins meira krefjandi á svart og sá tékkneski var vandanum vaxinn og pressaði vinninginn heim.

Á sama tíma hélt Hilmir sigurgöngu sinni áfram. Það var greinilega mikill klassamunur á honum og Elias Kingsley, heimamanni með rétt rúm 2000 stig. Hilmir vann auðveldan sigur sem leit mögulega út fyrir að vera auðveldari en hann var í raun!

Fyrsta tap Hilmis kom í seinni umferð dagsins. Hilmir hafði þá svart gegn Beresjuk sem var það heppinn að litirnir röðuðust þannig að hann fékk hvítt á báða Íslendingana sama daginn. Skák þeirra varð flókin, sviptingasöm og mikil baráttuskák. Á endanum reyndist Beresjuk klárari í bátana og náði í virkilega góðan sigur, fyrsta tap Hilmis.

Sasha kvittaði fyrir tapði í fyrri umferðinni með góðum tæknisigri í seinni umferðinni. Sasha var aldrei í hættu og náði að landa nokkuð þægilegum sigri.

Hilmir hefur 4,5 vinning og er í 2. sæti á eftir Hampus Sörensen en Sasha er í 3-4. sæti ásamt Beresjuk.


Staðan eftir 6 umferðir:

GM-flokkur (Vignir Vatnar Stefánsson)

3,5 vinningar af 6 – í 3. sæti
(1 tap, 3 jafntefli, 2 sigrar)

IM-flokkur

Hilmir Freyr Heimisson – 4,5 vinningar af 6 – í 2. sæti
Aleksandr Domalchuk-Jónasson – 4 vinningar af 6 – í 4. sæti


Næstu skref

Þriðjudagurinn 6. maí bíður með tvær umferðir til viðbótar – þær sjöundu og áttundu – áður en mótinu lýkur með tvöfaldri lokadagskeyrslu á miðvikudag. Allt getur gerst, en íslendingarnir klára vonandi mótið með stæl!

- Auglýsing -