Það var góð stemmning á skákkvöldi TG á mánudagskvöld þar sem alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson kom og kenndi gestum að nýta sér króka í skák. Jón sýndi hvernig má nýta sér veikleika sem vörn andstæðingsins og var hlustað af slíkum áhuga að enginn af áheyrendum mun þora að leika h3 eða h6 aftur.

Í kjölfarið var slegið upp sterku 7 umferð hraðskákmóti þar sem meðalstigafjöldinn var hátt í 2000 stig. Bárður Örn Birkisson var þar hlutskarpastur og er GM vikunnar. Hann fór taplaus í gegnum mótið en rammaði það inn með jafnteflum í fyrstu og síðustu umferð.

- Auglýsing -


















