Landsmótsmeistararnir 2025: Pétur Úlfar, Mikael Bjarki og Birkir.

Landsmótinu í skólaskák lauk á Ísafirði á sunnudaginn. Þar kepptu 12 nemendur grunnskóla víðsvegar um landið í þremur aldursflokkum. Skoðum gang mála í öllum flokkunum þremur á sunnudeginum.

1.-4. bekkur 

Pétur Úlfar Ernisson, Langholtsskóla, gerði sér lítið fyrir og vann allar sínar skákir og endaði því mótið með fullu húsi. Meiri spenna var um næstu sæti, en að lokum voru það tveir ungir menn sem skáru sig nokkuð úr hópnum í 2.-3. sæti, einum og hálfum vinningi fyrir ofan fjórða sætið. Það voru þeir Dawid Berg Charzynski, Kópavogsskóla, og Dagur Sverrisson, Vesturbæjarskóla með 9 vinninga. Spútnik maður mótsins varð svo Samúel Máni Samúelsson frá Ísafirði með 6 vinninga og öruggur sigurvegari landsbyggðarverðlaunanna.

Samúel, Dagur, Pétur, Dawid.

5.-7. bekkur 

Spennan var gríðarleg í þessum flokki á seinni deginum. Með sigri í næstsíðustu umferð gegn Hauki Víðis Leóssyni, Hlíðaskóla, náði þó Birkir Hallmundarson, Lindaskóla, að tryggja sér sigur í mótinu. Heimamaðurinn Karma Halldórsson vann Birki í síðustu umferð með smekklegri taktík og eftir það voru toppsætin nokkuð þétt setin: Birkir með 10 vinninga og þeir Karma og Haukur með 9.5, Haukur skör neðar á oddastigum. Efstur landsbyggðarkeppenda sem ekki fékk aðalverðlaun var Nirvaan Halldórsson bróðir Karma, sem fékk 6 vinninga. Gott mót hjá þeim og spennandi tímar framundan í skáklífi Vestfjarða. Karma og Nirvaan eru synir Halldórs Pálma mótshaldara.

Nirvaan, Haukur með derhúfuna að áeggjan landsmótsstjóra, Birkir, Karma.

8.-10. bekkur

Mikael Bjarki Heiðarsson, Vatnsendaskóla, er sterkur skákmaður, en yfirburðir hans á Landsmótinu í skólaskák verða að teljast nokkuð magnaðir. 11 vinningar, fullt hús takk fyrir. Fyrrum landsmótsmeistari Markús Orri Óskarsson, Síðuskóla varð annar með 9.5 vinning og þriðji Jósef Omarsson Landakotsskóla. Efstur landsbyggðarkrakka fyrir utan Markús var liðsfélagi hans úr SA, Sigþór Árni Sigurgeirsson, Oddeyrarskóla, með 6.5 vinning.

Sigþór, Mikael, Markús, Jósef.

Mótshald gekk vel og veðrið lék við okkur og því mikið skroppið út í fótbolta milli umferða. Rifjuðust upp taktar undirritaðs í knattspyrnu á landsmótinu í skólaskák á Akureyri 2011 en þeir eru ekki til útflutnings.

Á Ísafirði var knattleikurinn leikinn á Ísafirði leikurinn.

Halldór Pálmi Bjarkason er hugmyndasmiður mótsins á Ísafirði og Björn Ívar Karlsson og Gauti Páll Jónsson voru honum til halds og trausts. Ísafjörður á bestu þakkir skildar fyrir góðan keppnissal í grunnskólanum. Það er gott að tefla á Ísafirði! Svo var kvöldmatur á veitingastaðnum Logn á laugardeginum.

Það var ekki lognmolla á Logn.
- Auglýsing -