Laganefnd Skáksambands Íslands hefur unnið nokkrar tillögur að lagabreytingum sem lagðar verða fyrir á aðalfundi sambandsins á Blönduósi 14. júní.

Tillögur að breytingum á lögum og skáklögum ber að senda stjórn SÍ í síðasta lagi 25. maí, sbr. 16. gr. laga SÍ.

Breytingatillögurnar má sjá hér.

Hér á eftir verður stiklað á stóru í tillögunum og rök færð fyrir þeim.

 

Kosning stjórnar SÍ

Sú hefð hefur myndast að forseti skáksambandsins tilkynni á aðalfundi þá aðila sem hann leggur til að verði í stjórn. Til þess að auka lýðræðislega ásýnd stjórnarkjörsins er lögð fram sú breytingartillaga að framboði skuli skilað inn til framkvæmdastjóra sambandsins í síðasta lagi 3 dögum fyrir aðalfund.

Þá er lagt til að í stað þess að tilkynning um framboð til embættis forseta berist skrifstofu SÍ skuli þau berast formanni kjörbréfanefndar. Þetta er gert svo frambjóðandi sé ekki settur í þá aðstöðu að þurfa að tilkynna sitjandi forseta að hann ætli gegn honum.

 

Skáklög skáksambands Íslands

Hér er verið að koma til móts við þá umræðu sem kom upp í vetur í kringum Íslandsmót skákfélaga.

Í fyrsta lagi er settur fram tímafrestur fyrir sveitir sem ætla að afþakka sæti í deild eða óska eftir að vera færðar niður.

Í öðru lagi eru lagðar fram þrjár tillögur fyrir fundinn varðandi afdrif þeirra sveita sem óska eftir að vera færðar niður um deild.

  • Tillaga A – Óski félag eftir að vera fært niður um deild skal sveit félagsins færast niður í neðstu deild.
  • Tillaga B – Óski félag eftir að vera fært niður um deild skulu allar sveitir félagsins færast niður í neðstu deild.
  • Tillaga C – Óski félag eftir að vera fært niður um deild skal sveit félagsins færast niður um eina deild.

Í þriðja lagi er stjórn SÍ veitt heimild til þess að fara framhjá þessum reglum á þeim forsendum að þátttaka félags í Úrvalsdeild hafi neikvæð áhrif á samkeppni í deildinni, og þá í samráði við félag sem tekur sæti í Úrvalsdeild.

 

Lög um skákskóla Íslands

Landslög um skákskóla Íslands féllu niður um áramótin og hefur skólinn verið í ákveðnu lagalegu tómarúmi síðan. Ný lög skáksambandsins um skákskóla Íslands fylla í þetta tómarúm. Lögin eru unnin í samráði við skólastjóra skákskólans.

 

- Auglýsing -