Taflfélag Snæfellsbæjar blæs til glæsilegs minningarmóts 17. maí næstkomandi. Mótið er minningarmót Gunnars Gunnarsson og Ottó A. Árnasonar, báðir merkir menn í sögu Ólafsvíkur. Mótið fer fram í Félagsheimilinu Klifi og hefst klukkan 13:00.

Tefldar verða 8 umferðir með þar sem fyrstu 4 umferðirnar hafa tímamörkin 5+2 en næstu 4 umferðirnar eru 10+5.

Verðlaunafé á mótinu verður glæsilegt, yfir eina milljón króna!

Aðalverðlaun eru:

  1. 250.000
  2. 150.000
  3. 100.000

Auk þess er gisting fyrir tvö fyrir öll efstu þrjú sætin!

Aukaverðlaun, öll 30.000 krónur eru fyrir:

  • Kvennaverðlaun
  • U2000
  • U1800
  • 65+
  • Kvenna U16
  • Unglinga U16

Þátttökugjald á mótið er 5.000 krónur og innifalið er kaffihlaðborð og kvöldmatur! Jafnvel karokee eftir mat ef stemmning er!

Eins og venjulega er boðið upp á rútuferð frá BSÍ klukkan 09:00 og til baka þegar henta þykir.

Mót þessi hafa í gegnum tíðina verið afar vel lukkuð, vel sótt og vinsæl meðal skákmanna. Skak.is hvetur skákmenn til að taka þátt á þessu glæsilega móti.

Fyrri sigurvegarar eru: Helgi Ólafsson x2, Hannes Hlífar x2, Þröstur Þórhallsson, Stefán Kristjánsson, Arnar Gunnarsson og Henrik Danielsen.

- Auglýsing -