Næstsíðasta umferð Heimsmeistaramóts öldunga í skák í Vrnjačka Banja í Serbíu var tefld í gær. Hannes Hlífar gerði jafntefli í sinni skák gegn Ramal Hasangatin og missti þar með af öllum líkindum af möguleikanum að tefla upp á að komast í pall í lokaumferðinni. Hannes er hálfum vinningi á eftir efstu mönnum en þeir eru ansi margir í pakkanm fyrir ofan hann! í 65+ flokki kvenna hefur Guðlaug Þorsteinsdóttir heldur betur sótt í sig veðrið og vann sína þriðju skák í röð í gær!

Opinn flokkur 50+ (124 keppendur)

Hannes hafði hvítt gegn Hasangatin sem er reyndur rússneskum stórmeistara. Hannes lenti í smá brasi í byrjuninni og fékk lítið. Byrjunin svipaði mikið til skák Guðrúnar gegn Tamilu Trunz á EM ungmenna en þar var Guðrún með öll „Vignir Vatnar trikkin“ á hreinu og náði að búa til vandamál fyrir andstæðinginn. Hannes var ekki með sitt nægjanlega á hreinu og þurfti að halda stöðunni í horfi.

Þegar leið á náði Hannes að komast í endatafl sem var aðeins þægilegra á hann með praktískum sénsum, ekki stórum kannski en einhverjir sénsar! Rússinn náði hinsvegar að finan réttu varnarleikina og hélt jafnteflinu og gerði þar með eiginlega út um málmavonir Hannesar.

Hannes hefur 7 vinninga eftir þetta jafntefli, hálfum vinningi frá efstu mönnum.

Henrik Danielsen hafði svart gegn mexíkóskum IM og gerið jafntefli, sjöunda jafntefli Henriks á mótinu og hefur hann 5,5 vinning.

  • GM Henrik Danielsen – er sá fimmti sigahæsti með 2472 skákstig
  • GM Hannes Hlífar Stefánsson – er sá tíundi stigahæsti með 2401 skákstig.

Meðal annarra keppenda eru GM Murtas Kazhgaleyev (KAZ, 2532), GM Kiril Georgiev (BUL, 2512), GM Jean-Marc Degraeve (FRA, 2485) og GM Michele Godena (ITA, 2447).

Konur 65+ (29 keppendur)

Guðlaug stýrði svörtu mönnunum til sigurs gegn WFM Music og má segja að Guðlaug hafi alfarið séð um tónlistarstjórnina í þessari skák!

Teflt var Búdapestarbragð en sú byrjun á allmarga aðdáendur hér á landi! Guðlaug var fljót að taka yfir frumkvæðið og stýrði sínum mönnum til sigurs á faglegan hátt, góð skák!

Sigurlaug gerði jafntefli í sinni skák og hefur verið að rétta úr kútnum seinni part móts.

Guðlaug hefur 6 vinninga og Sigurlaug hefur 4 vinninga.

  • WFM Guðlaug Þorsteinsdóttir – 13. stigahæst með 1994 skákstig
  • Sigurlaug Regina Friðþjófsdóttir – 26. stigahæst með 1713 skákstig.

Í þessum flokki er goðsögnin GM Nona Gaprindashvili (GEO, 2168) stigahæst. Nona er auðvitað fyrrverandi heimsmeistari kvenna og var meðal keppenda á fyrsta Reykjavíkurskákmótinu 1964! Þess má geta að meðal keppenda í 50+ er sjálf GM Pia Cramling!

Úrslit 10. umferðar:

Pörun 11. umferðar:

Hannes og Guðlaug verða í beinni útsendingu og nú er að duga eða að drepast í lokaumferðinni og sækja sem besta sætið!

Mótið stendur til 14. nóvember og er teflt er í fjórum flokkum. Tæplega 400 keppendur taka þátt og þar af fjórir Íslendingar. Tveir í 50+ flokknum og tvær í 65+ flokki kvenna.

Tenglasafn

 

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn