Fyrr á þessu ári ákvað ég að tefla í A-flokki alþjóðlegrar skákhátíðar í Benidorm á Spáni dagana 25. október til 1. nóvember. Framan af voru bara tveir stórmeistarar skráðir til leiks á mótið, ég með mína hógværa stigatölu, rétt yfir 2400, og Norðmaðurinn Kristian Stuvik Holm (2500), sem var formlega útnefndur stórmeistari á fyrri hluta ársins 2025. Aðrir keppendur sem voru skráðir til leiks voru vel undir 2300 skákstigum. Þegar nær dró mótinu bættist við hinn nýbakaði stórmeistari, Felix-Antonio Ilinca (2507), 16 ára, sem teflir undir fána Rúmeníu, og svo indverski reynsluboltinn og stórmeistarinn Babu Lalit (2489).

Ég og sá síðastnefndi áttum okkar sögu frá sumrinu 2023, ágætt að rifja hana upp áður en lengra er haldið.

Reynslusaga frá Pardubice 2023 og princippið góða!

Í áttundu og næst síðustu umferð A-flokks skákhátíðarinnar í Pardubice í Tékklandi í júlí 2023 atti ég kappi við Babu Lalit. Í skák okkar Babu hafði ég svart og með sigri hefði hann þá þegar nánast tryggt sér sigur á þessari sterku skákhátíð, jafnvel þó að ein umferð væri eftir. Babu spann bogann hins vegar of hátt og ég bar sigur úr býtum. Þetta þýddi að fyrir lokaumferðina hafði ég hálfs vinnings forskot á næstu þrjá keppendur, áðurnefndur Babu var þar á meðal.

Í lokaumferð mótsins tapaði ég gegn alþjóðlegum meistara frá Kasakstan, Zhandos Agmanov, og niðurstaðan varð sú að Kasakinn, sem er núna orðinn stórmeistari, varð einn efstur á mótinu í Pardubice með 7½ vinning af 9 mögulegum á meðan ég deildi öðru sætinu með 7 vinninga. Eftir stigaútreikning varð Babu Lalit í öðru sæti en ég í því fimmta.

Nánar er fjallað um þessa reynslu mína sem miðaldra stórmeistara í greininni: „5 ára planið“, birt haustið 2023 í Tímaritinu Skák.

Vart þarf að taka það fram að það er gaman fyrir gamalreyndan stórmeistara, eftir langt hlé frá skákiðkun, að koma aftur inn í skákheiminn og berjast um sigur í A-flokki alþjóðlegrar skákhátíðar eins og þeirri sem haldin var í Pardubice sumarið 2023. Það er því jákvætt útaf fyrir sig, að vera í toppbaráttu á alþjóðlegum mótum, jafnvel þótt ekki takist að innbyrða sigur á slíkum mótum.

Samt, mitt principp er einfalt. Ég mæti í skákmót til að vinna þau. Hver er annars tilgangurinn fyrir mig að taka þátt? Þetta viðhorf hef ég haft síðan ég var krakki, hvers vegna að breyta því þó að aldurinn sé að færast yfir?

Almennt um skákhátíðina í Benidorm

Í A-flokki skákhátíðarinnar í Benidorm eru tímamörkin 90 mínútur á alla skákina og svo bætast 30 sekúndur við hvern leik. Af samtals átta keppnisdögum er einn keppnisdagur þar sem tefldar eru tveir skákir á dag. Í fyrstu sjö umferðum mótsins af níu hafa keppendur mikið frelsi til að taka yfirsetu og fá þá hálfan vinning fyrir vikið. Þessi skákhátíð hefur verið í þróun síðan árið 2021 og á heildina litið eru mótshaldarar orðnir afar rútíneraðir, skipulag keppninnar er traust og allir starfsmenn vita hvert þeirra hlutverk sé. Öll umgjörð skákhátíðarinnar ber hins vegar þess merkis að um túristamót er að ræða.

Þegar ég ákvað að skella mér í ár á skákhátíðina í Benidorm var viðhorfið að um æfingamót væri að ræða. Helsti tilgangur þátttöku minnar var að æfa sig gegn stigalægri skákmönnum og þá sérstaklega hvernig haganlegast væri að tefla til sigurs gegn þeim. A-flokkur skákhátíðarinnar er jafnan ekki mjög sterkur, meðal annars vegna þess að mótshaldarar bjóða engin kjör fyrir titilhafa og sterka skákmenn, nema kvöð um að greiða mótsgjald, gista á mótshóteli og borga allt úr eigin vasa, bæði ferðalög og uppihald! Á hinn bóginn eru verðlaun mótsins sæmileg í samanburði við sum önnur opin alþjóðleg mót.

Skipting verðlaunafjár móta sem fram fara á skákhátíðinni er óvenjuleg. Sem dæmi er hefðbundið að verðlaunum á skákmótum sé skipt eftir Hort-kerfinu, helmingi sé skipt jafnt á meðal keppenda sem hafa sömu vinningatölu og hinum helmingnum sé skipt á grundvelli stigaútreiknings. Á þessari skákhátíð er hins vegar eingöngu horft til þess sætis sem viðkomandi lendir í, eftir stigaútreikning, séu keppendur jafnir að vinningum. Jafnframt er í A-flokki skákhátíðarinnar bannað fyrir keppendur að semja um jafntefli fyrir 30. leik svarts (Sofía-reglan).

Þetta fyrirkomulag ýtir undir tilhneigingu sterkra skákmanna, sem þó mæta á staðinn, að berjast af hörku, enda er slíkt nauðsynlegt sé ætlunin að öngla saman einhverju fé upp í kostnað við ferðalög, gistingu og uppihald.

Árið 2023 hafði ég pælt í að taka þátt í þessari skákhátíð en hætti við meðal annars vegna þess hve mikið það kostaði að taka þátt í henni. Stuttu síðar hins vegar, gistu ég og eiginkonan, á hótelinu sem skákhátíðin fer fram, Melia Benidorm. Reynslan af þeirri dvöl gaf meðal annars til kynna að maturinn á hótelinu væri til fyrirmyndar.

Á sínum tíma gistum við hjónin á lægri hæðum hótelsins en í þessari ferð fékk ég herbergi upp á 19. hæð. Útsýnið var eftir því en ferð með lyftunni gat á hinn bóginn tekið sinn tíma, m.a. þegar mætt var í hverja umferð á jarðhæðinni. Veðrið var yndislegt á meðan mótinu stóð en því miður gat ég lítið notið þess þar eð eitt markmiðið með ferðinni var að eyða töluverðum tíma í undirbúning fyrir hverja skák.

Melia Benidorm, mótshótelið 

Taflmennska hinn 25. október 2026

Í lok september síðastliðnum, stuttu eftir að ég kom heim til Íslands frá skákferðalagi í Búdapest í Ungverjalandi, vann ég alþjóðlega meistarann Björn Þorfinnsson örugglega í 16 manna úrslitum Íslandsmótsins í netskák, 3½ vinning gegn ½ vinning. Ég stóð fyrir praktísku vandamáli í kjölfarið, 8 manna úrslit mótsins áttu að fara fram 25. október hins vegar og 1. nóvember hins vegar. Báða þessa daga átti ég að tefla í Benidorm, annars vegar í fyrstu umferð og hins vegar í níundu og lokaumferð mótsins. Þar sem ég reiknaði með að geta unnið skákina í fyrstu umferð Benidorm-mótsins kaus ég að klára málið og tefla einvígið í átta manna úrslitum við Aleksandr Domalchuk-Jonasson (Sasha) hinn 25. október.

Hraðskákeinvígið við Sasha hófst upp úr kl. 15:00 á íslenskum tíma þennan sunnudag en fyrsta umferðin í Benidorm átti að hefjast kl. 16:30. Einvígi okkar Sasha varð lengra og dramatískara en ég átti von á. Sem dæmi fór tími til spillis þegar Sasha gerði þau mistök að bjóða mér upp í skák með röngum tímamörkum.

Eftir að hafa kannað málið fyrir einvígið tefldi ég upp á hótelherberginu mínu í stað þess til dæmis að vera á hótelbarnum. Framan af var enginn vandi með netið, eftir 6 skákir var staðan jöfn, 3-3. Tefld var þá bráðabanaskák þar sem ég hafði hvítt. Eftir töluverðan barning hafði ég nægjan tíma og gjörunnið tafl:

1 stöðumynd, Átta manna úrslit Íslandsmótsins í netskák, Helgi Áss Grétarsson gegn Aleksandr Domalchuk-Jonasson, staðan eftir 68…Kf8-Ke8.

Staða hvíts er gjörunnin eftir t.d. 69. h7 Hh1 70. Kg6. Hér hins vegar fór netið af hótelherberginu mínu og sama hvað ég reyndi, þá tókst ekki að koma því aftur á fyrr en ég var fallinn á tíma! Niðurstaðan varð því sú að Sasha, félagi minn í Taflfélagi Reykjavíkur, komst áfram í undanúrslit keppninnar.

Auðvitað var ég í uppnámi eftir þessa uppákomu en sem betur fer er maður eldri en tvævetra í þessum bransa. Ég kíkti örstutt á andstæðing minn í fyrstu umferð, hún var eins og Sasha, fædd og uppalin í Úkraínu, ung skákkona sem hafði lítið teflt á undanförnum árum.

Þótt ég hafi mætt of seint til leiks í skákina þá gekk hún framan af nokkuð vel en svo bauð ég andstæðingnum upp á ótrúlega björgun:

2 stöðumynd, A-flokkur Benidorm skákhátíðarinnar, 25. október 2026, Uliana Yeshchenko (2073) gegn Helga Áss Grétarssyni (2405), staðan eftir 48…h4-h3??

Í stað síðasta leiks, 48…h4-h3??, var staða svarts gjörunnin eftir 48…Hb4-e4 þar eð 49. Hxc6 er svarað með 49…d4 og mótspil hvíts rennur út í sandinn á meðan svartur hefur sína sókn að hvíta kóngnum. Hvítur gat núna tryggt sér jafntefli í tveimur leikjum: 49. Hxg6+!! Dxg6 50. Dg7+!! og hvítur verður patt í næsta leik, hvort sem svartur tekur drottninguna með drottningu eða kóng! Í stað þessa lék hvítur 49. Dg3?? og gafst upp eftir 49…Hg4 50. De1 He4.

Taflmennska dagana 26.-28. október 2026

Dagana 26.-27. október 2026, í umferðum 2-4, vann ég þrjár skákir, allt saman andstæðingar undir 2300 stigum. Í annarri umferð mætti ég rúmenskum skákmanni sem mér fannst hafa sérstakan skákstíl, hann hafði tilhneigingu til að leika illa af sér eftir því sem lengra liði á skákir sínar, virtist afar bjartsýnn skákmaður að upplagi. Byrjunarundirbúningurinn fyrir þá skák gekk tiltölulega vel og hægt og rólega fór andstæðingurinn að leika af sér öllu húsinu.

Í þriðju umferð hafði ég svart gegn FIDE-meistara sem teflir undir fána Andorra og sem síðastliðinn september, með hvítu, hafði unnið kollega minn, Hannes Hlífar, á ólympíuskákmótinu í Samarkand í Úsbékistan. Ég ákvað að fara með löndum gegn þessum tiltölulega trausta skákmanni, meðal annars vegna þess að hann hafði tilhneigingu til að lenda í tímahraki. Valið á flóðhesta uppsetningu (e. Hippo-setup) Tískuvarnar með svörtu var sjálfsagt ekki sú skynsamlegasta af minni hálfu en allt er gott sem endar vel, eftir langa baráttu sveið ég andstæðinginn með riddara og tvö peð gegn biskupi og einu peði andstæðingsins.

Skákin gegn Andorramanninum fór fram um morguninn og fljótlega eftir hana fór önnur umferð fram, sama dag. Sem sagt, í fjórðu umferð mótsins mætti ég alþjóðlegum meistara sem teflir undir fána FIDE en er frá Hvíta-Rússlandi. Sá alþjóðlegi meistari hefur áður tekið þátt í þessari skákhátíð en teflir jafnan lítið. Með hvítu náði ég að plata hann snemma tafls og fékk yfirburðarstöðu. Úrvinnsla þeirrar stöðu var sveiflukennd en eftir baráttu í tímahraki beggja náði ég að brjótast í gegnum varnir andstæðingsins og vinna skákina.

Sem sagt, fjórir vinningar af fjórum mögulegum. Hið besta mál.

Þá rann miðvikudagurinn 28. október upp. Ég var efstur á mótinu ásamt áðurnefndum 16 ára stórmeistara, Felix-Antonio Ilinca (2507).

Við upphaf viðureignar minnar við Rúmenann unga. Mynd: Ismael Neto

Við undirbúning fyrir skákina við ungstirnið, þar sem ég hafði svart, kom mér á óvart að andstæðingurinn hafði aldrei snert skák fyrr en í Covid-faraldrinum árið 2020. Hann byrjaði því seint að tefla og hefur augljóslega lagt mikla vinnu á sig þar eð á árinu 2026 hefur hann náð þremur áföngum að stórmeistaratitli. Ég vildi tefla traust gegn þessum andstæðingi og hafa stöðu þar sem frekar reyndi á innsæi en eingöngu útreikninga. Andstæðingur minn kom mér á óvart í byrjun tafls og upp kom staða sem ég stúderaði svoldið sumrin 1993 og 1994, það er, fyrir meira en 30 árum!

3 stöðumynd, A-flokkur Benidorm skákhátíðarinnar, 28. október 2026, Felix-Antonio Ilinca (2507) gegn Helga Áss Grétarssyni (2405), staðan eftir 7. Rf3-e5.

Minni mitt sagði mér að 7…Db6 væri besti leikurinn og þeim leik hefði Alexei Shirov leikið árið 1992 í skák sem hann skýrði í Informator og ég fór yfir á æskuheimili mínu að Brúnastekk 11 í Neðra-Breiðholti. Annað mundi ég ekki.

Að skákinni lokinni kom í ljós að ég sjálfur hefði fengið þessa stöðu upp í tefldum skákum mínum, annars vegar með hvítu og hins vegar með svörtu. Í bæði skiptin reyndust varnir svarts traustar. Þessar tvær skákir mínar voru tefldar árið 1994, önnur þeirra fór meira að segja fram í Mathinhos í Brasilíu þar sem ég varð heimsmeistari 20 ára og yngri.

Hins vegar, á meðan skákinni við Rúmenann stóð, mundi ég eftir hvorugri minna eigin skáka, en mundi hins vegar vel eftir að hafa stúderað skák Shirovs í Brúnastekknum!

Jæja, hvað sem líðir minnisleysi miðaldra stórmeistara, þá ég tefldi prýðilega og andstæðingur minn lék illilega af sér í eftirfarandi stöðu:

4 stöðumynd, A-flokkur Benidorm skákhátíðarinnar, 28. október 2026, Felix-Antonio Ilinca (2507) gegn Helga Áss Grétarssyni (2405), staðan eftir 16…Bf8-xc5.

Staða þessi er í jafnvægi eftir 17. dxc5 Dxc5+ 18. Be3 Dxc4 19. Dxc4 dxc4. Sá rúmenski hélt sjálfsagt að hann ætti eitthvað betra og lék 17. Bxe5?? en vaknaði upp við vondan draum í framhaldinu: 17…dxc4 18. Dxc4 Dd2+ 19. Kf1

[19. Kg3 Dg5+ 20. Kf2 Dxe5 og svartur vinnur]

19…a5!

5 stöðumynd, A-flokkur Benidorm skákhátíðarinnar, 28. október 2026, Felix-Antonio Ilinca (2507) gegn Helga Áss Grétarssyni (2405), staðan eftir 19…a6-a5!

Hvítur verður núna mát eftir 20. Dxc5 Ba6+ 21. Kg1 De3#.

20. Ha2 Ba6 21. Hxd2 Bxc4+ og svartur vann skömmu síðar enda manni yfir í endatafli.

Glæsileg úrslit, fimm vinningar af fimm mögulegum.

Kvöldið 28. október afréð ég að taka þátt í atskákmóti sem hófst morguninn eftir og yrði lokið í tæka tíða fyrir sjöttu umferð sem hæfist kl. 16:30 á staðartíma, fimmtudaginn 29. október. Þessi ákvörðun var sérstök en ég hugsaði með mér, hvers vegna ekki að vinna bæði aðalmótið og atskákmótið?

Eftir á að hyggja kann að vera að skynsamlegra hefði verið að hvíla sig og spara orkuna en eigi að síður, á atskákmótinu öðlaðist ég áhugaverðar minningar ásamt því að tefla lærdómsríkar skákir – nánar um það í seinni hluta þessa greinabálks!

- Auglýsing - Skákskóli Íslands – upplýsingar um haustönn