Umræða hefur verið í gangi vegna Íslandsmóts öldunga 65 ára og eldri sem verður haldið á Akureyri dagana 22. – 24. maí nk. Við Áskell Örn Kárason vorum beðnir um að taka sæti í svokallaðri öldunganefnd sem fékk m.a. það verkefni að ákveða fyrirkomulag mótsins.

Við Áskell vorum á einu máli um að halda mótið á Akureyri enda er það skýr vilji stjórnar Skáksambandsins að halda mót á vegum sambandsins annað slagið á landsbyggðinni.

Það lá fyrir að mótið hefur verið frekar fámennt þau ár sem það hefur verið haldið og jafnvel hefur verið erfitt að fá ásættanlegan fjölda þátttakenda að borðinu. Mót með fullum tímamörkum hefði tekið a.m.k. eina viku með tilheyrandi gistikostnaði en eins og lagt er upp með tekur mótið nú þrjá daga.

Við Áskell vorum og erum vel meðvitaðir um þá skoðun sumra að mótið ætti að fara fram með lengri umhugsunartíma. Sú skoðun á fullan rétt á sér og hafa menn fært ágætis rök fyrir henni á þessum vettvangi.

Samt sem áður eru margir eldri skákmenn mjög áhugasamir um að tefla með styttri tímamörkum og eru mótin hjá Æsi, skákklúbbi eldri borgara, mjög gott dæmi um það. Jafnvel má halda því fram að eldri borgarar tilheyri þeim hópi skákmanna hér á landi sem er hvað virkastur.

FIDE er þessa dagana að gera tilraunir með styttri tímamörk og ekki er ólíklegt að í náinni framtíð muni 90 mínútna tímamörkin verða stytt niður í 45 mínútur auk viðbótartíma. Hér spilar margt inn í eins og aðstoð skákforrita sem gerir það að verkum að oft eru skákmenn búnir að renna fyrstu 15 – 20 byrjunarleikjunum í gegn um nálarauga forritanna og eiga því allan umhugsunartímann eftir og rúmlega það fyrir mið- og endataflið.

Ég vænti þess að skákmót öldunga muni njóta vaxandi vinsælda á komandi misserum enda eru árgangarnir, sem uxu úr grasi þegar einvígi aldarinnar var háð, að komast á eftirlaunaaldur. Þessir árgangar eru hlutfallslega fjölmennastir í Íslandssögunni.

Nýlega er lokið Heimsmeistarmóti öldungasveita en við Áskell komum einmitt í gærkvöldi frá Albaníu með bronsverðlaun í farteskinu. Þetta segir okkur að íslenskir skákmenn á þessum aldri eru á heimsmælikvarða hvað getu varðar.

Ég hvet alla skákmenn á vizkualdrinum 65+ að skunda til Akureyrar og njóta þjóðaríþróttar hugans . Einnig mæli ég með því að á næsta aðalfundi Skáksambandsins verði tekinn sérstakur dagskrárliður undir öldungaskák því hún á svo sannarlega framtíðina fyrir sér. Að lokum skora á ég stjórn Skáksambandsins að auka veg og virðingu öldungaskákarinnar sem mest.

Þorsteinn Þorsteinsson

- Auglýsing -