Vill einhver elska 49 ára gamlan stórmeistara?
Af áföllum og sigrum í Búdapest í september 2026 – seinni hluti
Haustið 2024 tefldi ég, í kjölfar þess að hafa teflt fyrir íslenska landsliðið á ólympíumótinu í Búdapest, á lokuðu 6 daga móti þar í borg. Mér líkaði prýðilega vel við aðstæður og mótshaldari þessarar mótaraðar, ungverski FIDE-meistarinn Miklós Halák, er viðkunnanlegur maður, í senn traustur og yfirvegaður.
Á þessu móti í lok september 2024 byrjaði ég af fítónskrafti, að fjórum umferðum loknum hafði ég þrjá og hálfan vinning. Með réttu hefði ég svo átt að vinna skákina í fimmtu umferð, sennilega eitt mesta klúður mitt síðan ég byrjaði að tefla aftur fyrir alvöru fyrir átta árum. Þeirri skák lyktaði með jafntefli og í kjölfarið fylgdu tvö stutt jafntefli en endaspretturinn var dapur, ég tapaði tveimur síðustu skákunum og glutraði tækifæri til að vinna lokað alþjóðlegt mót.
Reynslan fyrir tveimur árum var verðmæt þegar keppni hófst í lokaða stórmeistaraflokknum hinn 20. september síðastliðinn.
Eins og fyrir tveimur árum var teflt í húsakynnum Skáksambands Ungverjalands, steinsnar frá alþingishúsi Ungverja, í hjarta miðborgar Búdapests. Ástæða er til að sýna myndir af eldri 6 daga mótum svo að lesandinn fái innsýn inn í aðstæður á skákstað:
Skákstaður, ljósmynd tekin af heimasíðunni https://sixdayschess.hu/
Hér fór stórmeistaraflokkurinn minn fram, 20.-25. september 2026 en þessi ljósmynd Michael Yip, sem birt er á fésbókarsíðu sixday-mótaraðarinnar, er frá IM-móti sem haldið var í mars 2025. Ég reikna með að íslenskir skákáhugamenn kannist við hávaxna keppandann með derhúfuna!
Lokaða sex daga mótið, 20.–25. september 2026
Meðalstig lokaða stórmeistaraflokksins voru 2394 stig. Ég var aldursforseti mótsins en gamalkunnugt andlit var einnig með í mótinu, Azer Mirzoev (2418), fæddur 20. mars 1978. Azer er aserskur stórmeistari sem ég tefldi við í Bratislava í Slóvakíu á HM 16 ára og yngri árið 1993, í þeirri skák náði ég að hanga á jafntefli, með riddara gegn hrók! Skömmu síðar tók ég sigursprett á mótinu, vann svo efsta keppandann í níundu umferð og deildi efsta sætinu ásamt öðrum þegar tvær umferðir voru eftir. Að endingu fékk ég silfrið góða en núverandi aserski kollegi minn í stórmeistarastétt, Azer, lenti neðar í mótinu.
Við Azer gerðum líka jafntefli í baráttuskák sumarið 2022 á móti í Tékklandi en ég tapaði fyrir honum í hraðskák á móti í Balaguer á Spáni sumarið 2001. Svo við Azer þekkjum hvorn annan, altso, í meira en 33 ár!
Þriðji stórmeistarinn í mótinu var fyrrverandi landsmeistari Úkraínu frá árinu 2007, Valentin Aveskulov (2466). Aveskulov flúði stríðið í Úkraínu fyrir fjórum árum. Hann hafði þá um langt árabil sinnt háskólakennslu og rannsóknum í lögfræði í Kharkiv. Með öðrum orðum, hann gaf skákina upp á bátinn fyrir löngu síðan en þurfti að taka hana upp aftur fyrir fjórum árum.
Hann á stóra fjölskyldu í Ungverjalandi, eiginkonu og fjögur börn. Við eigum því margt sameiginlegt, ég og Aveskulov, stórmeistarar með stóra fjölskyldu og reynslu af því að kenna lögfræði á háskólastigi og sinna rannsóknum á því sviði!
Niðurstaðan varð sú að við stórmeistararnir gerðum allir stutt jafntefli innbyrðis, sem dæmi var ég nokkuð feginn þegar Úkraínumaðurinn bauð mér jafntefli eftir níu leiki með hvítu í fyrstu umferð mótsins – sjaldgæft að pirc-vörnin mín hræði stórmeistara svo að jafntefli sé boðið snemma tafls!
En þá komum við að meðalaldri annarra keppenda. Hann var lágur. Að meðaltali voru hinir sjö keppendurnir fæddir árið 2009, sem sagt, 17 ára pjakkar, að jafnaði! Í annarri umferð tefldi ég einmitt við 17 ára gamlan Armena, Vache Hovakimyan.
Mér fannst margt heppnast vel í þeirri skák þótt tölvan sé ekki sammála mér. Vegna slælegrar tímanotkunar minnar bauð ég Armenanum jafntefli eftir 22. leiki og var þess fullviss að hann myndi ekki þekkjast það. Það stóð og heima. Í framhaldinu gerðu báðir keppendur sig seka um ónákvæmni en í eftirfarandi stöðu:
1stm, Lokaða 6 daga mótið, 21. september 2026, Helgi Áss Grétarsson (2420) –Vache Hovakimyan (2362), staðan eftir 31. Rd4-e2
…hugsaði Armeninn sig um í óratíma og lék 31…De4-c6 þegar hann átti eina sekúndu eftir á klukkunni!
Á meðan skákinni stóð fannst mér þessi leikur skrýtinn og hefði að sjálfsögðu átt bara að fylgja innsæinu mínu og leika 32. Db3, þá hefði ég átt yfir tveir mínútur eftir en svartur bara 31 sekúndu. Slík ákvörðunartaka hefði sett þrýsting á andstæðinginn sem hefði verið snúið fyrir hann að leysa úr. Þess í stað eyddi ég tíma í útreikninga sem engu skiluðu og í kjölfarið missti ég tímaforskotið og alla möguleika á að pressa andstæðinginn í þessari jöfnu stöðu.
Að lokum lyktaði skákinni með jafntefli en eftir 31…Dc6 lék ég 32. Hb8 og fylgdi því eftir með slökum leik. Taflinu tókst mér hins vegar að bjarga, fussandi og sveiandi á meðan skákinni enn stóð, sá gamli hefur ekki yfirgefið keppnisskapið sitt, mér fannst að ég hefði átt að vinna skákina!
Bara svo að það sé sagt, fyrir mér er svo augljóst að leika 32. Db2-b3, halda hróknum á góðum stað á b7 og X-raya hrókinn á c4 útaf f7-punktinum. Lélegt að leika þessu ekki strax, þótt tölvan segi að taflið sé enn jafnt eftir 32…Dc6-e4. Að leika drottningu aftur á e4 er erfið ákvörðun með 31 sekúndu eftir á klukkunni!
Hér komum við að einu aðalatriði í skák nútímans, en það er að taka réttar ákvarðanir skjótt á lykilaugnablikum. Þetta hefur Magnus Carlsen oft sýnt í sínum skákum, meðal annars hvernig pressa eigi andstæðinginn í jöfnum stöðum.
Mistök í skák gerast nefnilega ekki í tómarúmi. Sem dæmi, þetta skilja allir sem mæta Vigni Vatnari í hraðskák en sá kútur kann að spila á klukku andstæðingsins. Fyrr eða síðar mun ég læra á þann bragðaref!
Jæja, höldum okkur við efni greinarinnar.
Í næstu umferð mætti ég 15 ára gömlum indverskum alþjóðlegum meistara, Shanty Jake. Ég hafði greint þann skákmann sem fremur veiklulegan, það er, að hann tefldi of passíft. Markmiðið var því að vinna skákina og tefla tiltölulega djarft. Vandinn var hins vegar sá að ég gekk of langt í þeim efnum. Ég lagði of mikið á stöðuna og eyddi of miklum tíma.
Fyrir fram vissi ég að andstæðingur minn myndi eyða töluverðum tíma en það réttlætti ekki mín afglöp. Þessi skákmaður á margt eftir ólært en augljóst er að hann býr yfir mikilli þrautseigju og hefur æft sig mikið í að koma í veg fyrir áætlanir andstæðingsins.
Það var því lélegt að tapa þessari skák en hún var eigi að síður um margt lærdómsrík. Eins og stundum áður í þessu lokaða móti var ég of bjartsýnn fyrir hönd minnar eigin stöðu, hlutlægt mat á stöðunni var ekki nógu gott.
2stm, Lokaða 6 daga mótið, 21. september 2026, Shanty Jake (2408) – Helgi Áss Grétarsson (2420) – staðan eftir 23. Dd2-e2
Að mínu mati gerði ég margvísleg praktísk mistök í aðdraganda þessarar stöðu (tímanotkun og mótun stöðunnar) en hlutlægt séð er hún í jafnvægi. Lang eðlilegast er fyrir svartan að berjast um yfirráð f-línunnar og nærtækt var því að leika hér 23…Dd6 og stefna á virku mótspili með biskupaparið eftir 24. Dxe4 Hf8. Þess í stað lék ég 23…Bd7-f5?! og eftir 24. g4! náði hvítur betra tafli sem að lokum dugði honum til sigurs.
Grátlegt tap gegn skákmanni sem ég veit að ég á ekki að tapa fyrir, en svona er skákbransinn, hann er harður!
Í fjórðu umferð gerði ég stutt jafntefli gegn áðurnefndum Azer Mirzoev og í fimmtu umferð hafði ég hvítt gegn yngsta keppenda mótsins, Kannan Vaidyanathan, fæddur árið 2013. Kannan þessi teflir fyrir Bandaríkin en er Indverji og býr þar, í Mumbai, ef mig minnir rétt. Eins og margir aðrir keppendur frá Indlandi þá var annað foreldri Kannans með honum í Búdapest.
Bara það sé nefnt í framhjáhlaupi þá voru jafnan 8-10 indverskir foreldrar á ganginum á meðan umferð stóð.
Fljótlega í skák okkar Kannans lenti ég í vörn. Á vissum tímapunkti fannst mér ég taka sjálfan mig saman í andlitinu og ná tökum á verkefninu, stefnt skyldi að því að halda jafntefli. Skákin leystist upp í hróksendatafl sem andstæðingur minn tefldi óvarfærnislega, í misskildum tilraunum sínum til að vinna skákina. Sá gamli, andstæðingur hans, er þó eldri en tvæ vetra í slíkum kúnstum. Ég gerði mig hins vegar aftur seka um að fylgja ekki innsæinu á lykilstundu:
3stm, Lokaða 6 daga mótið, 22. september 2026, Helgi Áss Grétarsson (2420) –Kannan Vaidyanathan (2340), staðan eftir 43…h7-h5
Svartur átti um 47 sekúndur þegar hann lék leik sínum, 43…h7-h5, en ég átti um 2 mínútur og 20 sekúndur eftir. Innsæi mitt sagði mér að leika 44. d7, ef ég vildi reyna að vinna skákina. Í stað þess að fara eftir því varð ég hræddur eftir einhverja útreikninga og lék 44. Hxa7. Við það tapaði hvítur mikilvægum tíma þar eð svartur hefði þurft að tefla nákvæmt til að halda jafntefli eftir 44. d7.
Í framhaldinu var verkefnið einfaldara og jafntefli varð niðurstaðan.
Jæja, tveir dagar af þremur búnir þar sem tefldar voru tvær skákir á dag. Næsta skák var gegn hinum 14 ára Vishal Shah Vivaan frá Indlandi sem ég hafði tapað fyrir á opna mótinu. Ég ákvað að tefla Philidor-vörnina gegn honum, með svokallaðri ljóns-útgáfu, ef hún byðist. Skákin var flókin en um margt var ég sáttur við gang mála, margir menn eftir á borðinu og ég þess fullviss að ég skildi stöðuna betur en andstæðingurinn.
En, þessi 14 ára gutti er rútíneraður og fljótur að reikna út afbrigði. Mistök af minni hálfu gerðu að verkum að ég þurfti að tefla af nákvæmni til að halda jöfnu tafli en áður hafði ég haft eilítið frumkvæði:
4stm, Lokaða 6 daga mótið, 23. september 2026, Shah Vishal Vivaan (2323) – Helgi Áss Grétarsson (2420) – staðan eftir 28. Dg2-f3
Andstæðingur minn var hér með töluvert lakari tíma, rétt svo mínútu eftir en ég rúmar fjórar. Þreyta mín var hins vegar farin að segja verulega til sín. Auðvitað hafði ég séð ýmsa taktíska möguleika fyrir þar sem biskup minn á b7 gæti fallið. Í þessari stöðu varð svartur að leika 28…Hxe4 og jafntefli verður niðurstaðan, t.d. eftir 29. Bxe4 Dxe4 30. Dxe4 Rxe4 31. Rf1 Rg5+ 33. Kh2 Rf3+ 34. Kg2 Rg5+ og þrátefli er niðurstaðan. Mér var ljóst að 28…Hxe4 myndi ganga upp að öllum líkindum en hvers vegna ekki að reyna að vinna skákina?
Á grundvelli þeirrar delluhugmyndar lék ég 28…Rxe4?? og tapaði skákina snarlega eftir 29. Hxf7+ Kg8 30. Bxe4! Hxe4? 31. Hf8+ Kh7 32. Dxh5+ og hvítur mátar í næsta leik og því gafst ég upp.
Það verður að viðurkennast að ég komst í mikið uppnám við lok þessarar skákar þar eð mér fannst ég hafa tekið skynsamlegar áhættur í skákinni og náð fram stöðu þar sem ég hefði með réttu átt að geta teflt til vinnings. Við nánari skoðun kemur hins vegar í ljós að andstæðingur minn tefldi um margt traust og sýndi á mikilvægum augnablikum mikinn skilning á skák. Hæfileikar þessa skákmanns eru ótvíræðir og reikna ég með að hann verði fljótlega stórmeistari, kannski eftir 2-3 ár. Í öllu falli er það engin tilviljun að hann vann mig 2-0 í þessum tveimur 6 daga mótum í Búdapest.
Jæja, útlitið var orðið dökkt eftir þessi úrslit, ég með 2 vinninga af 6 mögulegum og lifandi stigin mín komin vel niður fyrir 2400 stig. En þegar neyðin er mest þá er hjálpin næst. Næsta morgun vaknaði ég ferskur, markmiðið var að vinna stigahæsta keppanda mótsins, hinn 16 ára indverska alþjóðlega meistara, Parvathareddy Santhosh Ajay.
Sá vann opna mótið sem lauk 19. september og stóð núna frammi fyrir því verkefni að þurfa að vinna allar þrjár síðustu skákir sínar til að ná áfanga að stórmeistaratitli. Þetta vissi ég og það gaf mér líka sjálfstraust að fram að þessu hafði ég ekki tapað skák með hvítu í ferðinni. Planið var að halda því þannig út dvöl mína í Búdapest.
Sá indverski fór snemma utan vega í skák okkar í því skyni að koma mér í opna skjöldu í byrjunarvali en ég var vandanum vaxinn og lagði fyrir hann lævísa gildru:
5stm, Lokaða 6 daga mótið, 24. september 2026, Helgi Áss Grétarsson (2420) – Parvathareddy Santhosh Ajay (2477), staðan eftir 10. f2-f4
Í stað þess að velta vöngum í þessari stöðu og finna dýpri leiðir fyrir svartan til að verjast og þróa taflið, hélt andstæðingur minn við sinn keip, og tefldi á ógnarhraða: 10…h6? sem var svarað skjótt með 11. Rxf7! og framhaldið varð 11…Hxf7 12. fxe5 Dxe5 13. Dc4 Rd5 14. Hxf7 Kxf7 15. exd5 Ke7 16. Dc5+ (nákvæmara var að leika 16. Df1+) 16…Kd8? 17. Df2 og nokkru síðar í skákinni hafnað ég því að fara í endatafl með peði meira þar eð markmiðið var að máta andstæðinginn, enda kóngurinn á miðborðinu, hann stendur á d8, eftir allt saman!:
6stm, Lokaða 6 daga mótið, 24. september 2026, Helgi Áss Grétarsson (2420) – Parvathareddy Santhosh Ajay (2477), staðan eftir 22…d5-d4
Hér lék ég 23. Rb5! og þótt næstu leikir mínir hefðu ekki verið þeir nákvæmustu þá dugðu þeir til sigurs: 23…Bxb3 24. Dc7+?! Ke8 25. Rd6+?! Dxd6? 26. Dxd6 Hd8? 27. Dxg6 og svartur gafst upp.
Eins og við mátti búast var ég kampakátur eftir þessa fyrstu sigurskák mína, gegn stigahæsta keppandanum og eftir eingöngu tveggja klukkutíma setu. Orkustig mitt var því með skárra móti gegn ísraelska FIDE-meistaranum Eyal Noy (2357) í seinni skákinni fimmtudaginn 24 september.
Ég ákvað með svörtu að tefla djarflega og þrátt fyrir ónákvæmni í byrjun tafls, sem ég læri vonandi af, þá tókst mér að rétta skipið af og ná um það bil jöfnu tafli. Vegna lélegri tíma bauð ég andstæðingi mínum jafntefli en hann hafði átt slakt mót fram að þessu.
Eins og ég átti svo sem von á, hafnaði hinn 23 ára andstæðingur minn jafnteflisboðinu. Eftir nokkuð langa vörn mína í jafnri stöðu lék Ísraelinn illa af sér og í anda Aljékíns fórnaði ég manni og hóf stórsókn gegn kóng andstæðingsins:
7stm, Lokaða 6 daga mótið, 24. september 2026, Eyal Noy (2357) – Helgi Áss Grétarsson (2420) – staðan eftir 65. Kd2-e2
65…Rxf3! 66. Kxf3 Dd7 67. Kf2 Dxg4 68. He2 f5!
Allar flóðgáttir hafa opnast að hvíta kóngnum sem og að kóngsvæng hvíts í heild sinni. Svartur vann nokkrum leikjum síðar.
Jæja, sei, sei, sá gamli kominn með tvær sigurskákir í röð og helmings vinningshlutfall, ein umferð eftir!
Sú skák var gegn efsta keppanda mótsins, 19 ára kínverskum alþjóðlegum meistara, Yixing Wu. Taflmennska hans með svörtu hafði ekki hrifið mig en hann hafði teflt traust með hvítu. Ég ákvað því snemma föstudagsmorguninn 25. september að telft yrði til sigurs, fyrr eða síðar myndi andstæðingurinn leika stöðulega af sér og enn hafði ég ekki tapað skák með hvítu, hví ekki taka sénsinn og sýna að sá gamli væri bara rétt að byrja að hita upp skákputtana?
Þessi ákvörðun reyndist farsæl.
Ég vissi svo sem ekkert hvað ég var að gera í byrjuninni en vissi einnig að andstæðingurinn væri ekki mikið fróðari. Á tiltölulega stuttum tíma fann ég leið til að skapa vandamál fyrir andstæðinginn og í 14. leik sýndi svartur mér hvers vegna mat mitt á honum sem skákmanni hefði verið byggt á traustum rökum:
8stm, Lokaða 6 daga mótið, 24. september 2026, Helgi Áss Grétarsson (2420) – Yixing Wu (2371), staðan eftir 14. Dc2-d1
Hér lék svartur 14…f5? og þessi nálgun andstæðings míns kom mér ekki í opna skjöldu en varpaði hins vegar ljósi á takmarkaðan skilning hans á stöðulegum lögmálum skáklistarinnar. Í framhaldinu tefldi ég nokkuð vel, sá taktískar hugmyndir og tefldi tiltölulega rösklega. Niðurstaðan var öruggur sigur, sá þriðji í röð!
Jafnframt lenti ég í þriðja sæti á mótinu eftir stigaútreikning með 5 vinninga af 9 mögulegum, tveir skákmenn deildu efsta sætinu með 5½ vinning, áðurnefndur Yixing Wu og Indverjinn knái, hinn 14 ára Vishal Shah Vivaan. Sá síðarnefndi náði áfanga að alþjóðlegum meistaratitli.
Stigalega græddi ég rúmlega eitt stig á mótinu og því náðist takmarkið, að tapa minna en 20 skákstigum í þessum skáktúr til Búdapest.
Þótt 15 stig hafi fokið út um gluggann er ég reynslunni ríkari og hef fyllt koffortið af hugmyndum um hvernig eigi að vera betri í skák.
Ekki slæm býti, 15 skákstig í samanburði við þann fróðleik sem ég aflaði mér. Þessi reynsla mun koma að góðum notum á næstu misserum.
Skák er skemmtileg!
















