Vill einhver elska 49 ára gamlan stórmeistara?
Af áföllum og sigrum í Búdapest í september 2026 – fyrri hluti
Árið 1982 gaf Þursaflokkurinn út lagið „Vill einhver elska?“ þar sem texti lagsins fjallar um einkamálaauglýsingu 49 ára gamals manns sem óskar eftir að hefja ástarsamband, meðal annars með vísan til þess að hann eigi íbúð og bíl ásamt því að vera fráskilinn og að hann sé að safna þjóðbúningadúkkum.
Viðbrögðin við einkamálaauglýsingunni voru dræm:
„Spegillinn sagði ekki ég. Og þögnin sagði ekki ég. Og myrkrið sagði ekki ég. Og mennirnir svöruðu ekki neinu.“
Mér var hugsað til þessa lags þegar á leið taflmennsku mína á tveimur sex daga mótum (e. Sixdays tournaments) sem fram fóru í Búdapest í Ungverjalandi í síðastliðnum september.
Hvers vegna? Jú, vegna þess að þarna var ég, hinn 49 ára gamli stórmeistari frá Íslandi, að taka þátt í alþjóðlegum kappskákmótum í fyrsta skipti í rúma 20 mánuði og hvergi var um þátttöku mína fjallað, ekki einu sinni á skak.is!
Hvílík vonbrigði að fá ekki athygli frá íslenska skáksamfélaginu, eru allir hættir að elska þennan 49 ára gamla stórmeistara?
Þrátt fyrir þessar spurningar og efasemdir hefur sjálfstraust mitt haldist furðu gott.
Málið er nefnilega það að ritstjóri skak.is upplýsti mig um það að á sama tíma og mótin í Búdapest hefðu farið fram hefði verið teflt í Samarkand í Úsbékistan á svokölluðu ólympíuskákmóti. Allir helstu máttarstólpar skáksíðunnar hefðu verið með fókus á það verkefni, en ekki einhver túrbómót í höfuðborg Ungverjalands.
Fullkomlega skiljanlegt, svo það sé sagt.
Jæja, að öllu gamni slepptu, samkomulag mitt við ritstjóra skak.is. gekk út á að ég myndi rita nokkrar línur um þessi mót sem ég tók þátt í – annars vegar opið sex daga mót og hins vegar lokað sex daga mót. Taflmennska mín í báðum þessum mótum var ansi skrautleg en allt er gott sem endar vel, í blálok hinnar 18 kappskákatarnar vann ég þrjá skákir í röð.
Opna sex daga mótið, 14.–19. september 2026
Í ljósi þess hve lítið ég hefði teflt kappskák var heildarmarkmiðið fyrir fram að tapa ekki meira en 20 fide-skákstigum, sem sagt, að halda sér yfir 2400 alþjóðleg kappskákstig! Margir myndu segja að þetta markmið væri metnarlítið en bæði er það svo að ég þekki sjálfan mig sem og hinn alþjóðlega skákbransa. Það er mikil áskorun fyrir ryðgaðan miðaldra stórmeistara að taka þátt í alþjóðlegum mótum þar sem mikið er um metnaðargjarna titlaveiðara og þar sem teflt er oft tvisvar á dag, eða helming allra keppnisdaga, þremur af sex.
Skákin í fyrstu umferð heppnaðist eigi að síður vel, ég tefldi í anda Alexanders Aljékíns, stormaði með h-peðið að kóng svarts og saumaði síðan að andstæðingnum með skemmtilegum hætti:
1stm, Opna 6 daga mótið, 14. september 2026, Helgi Áss Grétarsson (2420) –Vilmos Balint (2207), staðan eftir 22…Rb8-Rc6
Hh3! Df4 25. Hh4! Dg3 26. Hc4!
Hvítur hefur núna með snjöllum leikvinningum virkjað hrókinn sinn á h1 til góðra verka, staða svarts er að hruni komin. Næsti leikur svarts er afleikur í töpuðu tafli:
26…g5? 27. Rf6+ Kh8 28. Rh5 drottning svarts er fallin í valin og svartur gafst upp skömmu síðar.
Jæja, nú hélt sá gamli að gott gengi myndi bara halda áfram líkt og þegar hann varð Íslandsmeistari í atskák í lok ágúst og vann viku síðar sterkt atskákmót í Vestmanneyjum. En engin er rósin án þyrna.
Daginn eftir fyrstu umferðina voru tefldar tvær skákir og í þeim báðum hafði ég gjörunnið tafl en klúðraði báðum skákunum niður í jafntefli. Annað jafnteflið var gegn 12 ára pólskum polla, Nikodem Mrozowski (2095):
1stm, Opna 6 daga mótið, 15. september 2026, Nikodem Mrozowski (2095) – Helgi Áss Grétarsson (2420), staðan eftir 39. Kf3-xe3

Þetta endatafl er gjörunnið á svart þar eð fyrir utan að vera peði yfir er kóngur svarts virkari, kóngur hvíts er skorðaður meðfram d-línunni og peð svarts á drottningarvæng munu sjá um að vinna skákina. Svartur átti um fimm mínútur eftir á klukkunni og því illskiljanlegt hvers vegna ekki hinum einfalda 39…Hd8-d7 hafi verið leikið, þar eð þá er aðferðin við að vinna mjög einföld, bara ýta drottningarvængspeðunum áfram með b7-b5 á meðan engin ógn stafar af hvítu peðunum á kóngsvæng.
Þess í stað lék ég 39…Ke6? og þrátt fyrir að taflið væri áfram unnið tókst mér með undaverðum hætti að glutra taflinu niður í jafntefli.
Þreyta var strax byrjuð að segja til sín, og það í annarri umferð, bara 16 skákir eftir á tíu dögum!
Í fjórðu umferð mætti ég stórhættulegum skákmanni og ég vissi það fyrir fram. Hinn 14 ára Vishal Shah Vivaan frá Indlandi hafði kannski ekki ýkja há eloskákstig en þegar ég var að undirbúa mig fyrir skákina sá ég strax að hann teflir vel, reiknar afbrigði fljótt út og er nú þegar kominn með mikla reynslu. Þegar hann var 13 ári komst hann upp í 2429 stig.
Þrátt fyrir að byrjun mín með svörtu hafi heppnast prýðilega lenti ég í vandræðum en gat bjargað jafnteflinu í eftirfarandi stöðu:
1stm, Opna 6 daga mótið, 16. september 2026, Shah Vishal Vivaan (2323) – Helgi Áss Grétarsson (2420), staðan eftir 34. c5-c6
Í þessari stöðu átt ég rúmar tíu mínútur eftir og notaði þær hér um bil alveg. Lausnin við að leysa vandamál svörtu stöðunnar er einföld: 34…Hd7! og hvítur þarf að sætta sig við jafntefli. Þennan leik sá ég ekki og tapaði örugglega í framhaldinu eftir 34…Hbb8??
Úrslit þessarar skákar voru vonbrigði en mér fannst frammistaðan ekki hræðileg, skákin var um sumt afar lærdómsrík. Þreytan eftir þessa skák í morgunumferðinni var mikil svo í síðdegisskákinni ákvað ég að tefla hratt með hvítu og ekki hugsa of djúpt. Sú strategía gekk upp gegn hinum 16 ára Indverja, Kushagra Jain:
1stm, Opna 6 daga mótið, 16. september 2026, Helgi Áss Grétarsson (2420) – Kushagra Jain (2293), staðan eftir 57…Kd5-Kc5??
Hér lék ég 58. Rc4! og svartur er í leikþröng þar eð peðsendataflið eftir 58…Bxc4 59. bxc4 tapast eftir 59…a4 60. a3. Hvítur vann skömmu síðar þar eð svörtu peðin féllu hvert á eftir öðru.
Ánægjulegur sigur sem kostaði ekki of mikla orku. En til þess eru vítin, að varast þau!
Næstu þrjár skákir voru afar slappar. Fyrst tapaði ég illa fyrir sænska stórmeistaranum Vitaly Sivuk (2476), svo gerði ég jafntefli gegn aldursforseta mótsins, alþjóðlega meistaranum Virgilio Vuelban (2241) frá Filippseyjum, og að lokum tefldi ég hörmulegustu skák ferðarinnar gegn heimamanninum Zoltan Csaba Varga:
1stm, Opna 6 daga mótið, 18. september 2026, Zoltan Csaba Varga (2291) – Helgi Áss Grétarsson (2420) , staðan eftir 18…Ke7-Kf7
Taflmennskan í þessari skák var fyrir neðan allar hellur en hún stafaði meðal annars af mikilli þreytu, ég hafði reynt að vinna skákina um morguninn og hafði mín tækifæri til þess en nýtti þau ekki vel. Planið í þessari skák var að tefla hratt og taka áhættu. Það leiddi til þess að ég tefldi byrjunina hrikalega illa. Andstæðingur minn tefldi einnig ónákvæmt en ég var alveg blindur fyrir þeim hættum sem svarta kóngnum var búin. Ég lagði niður vopnin eftir 19. Dxe6+! þar eð svartur verður mát eftir 19…Kxe6 20. Bd5+ Ke5 21. f4#.
Orð fá því ekki lýst hvernig mér leið eftir þessa útreið. En eins og Scarlett O‘Hara sagði í lokalínu óskarsverðlaunamyndarinnar á Hverfanda hveli: „After all, tomorrow is another day!“ (isl. Eftir allt saman, þá er á morgun nýr dagur!).
Andstæðingur minn í lokaumferðinni var hinn 12 ára heimamaður, Andras Ilko-Toth. Sá lifir við fötlun, að minnsta kosti fyrir mig, sem leikmann, hlýtur hann að vera skilgreindur sem dvergur. Sem skákmaður er hann sterkur þrátt fyrir ungan aldur. Hann er vel að sér í byrjunum og hefur náð fínum úrslitum í gegnum tíðina á móti öflugum andstæðingum, sem dæmi í þessu móti hafði hann unnið tafl gegn ungverska stórmeistaranum Gergely Aczel (2448) en skákinni lyktaði að lokum með jafntefli.
Á EM einstaklinga í opnum flokki í Katowice í Póllandi síðastliðinn apríl stóð hann lengi í goðsögninni Vassily Ivansjúk í fyrstu umferð mótsins.
Sem sagt, verkefni lokaumferðarinnar var ekki einfalt. Hins vegar gekk undirbúningur vel og hugmynd sem ég hafði kynnt mér fyrir skákina kom upp, að vísu í annarri stöðu en þeirri sem nákvæmlega kom upp:
1stm, Opna 6 daga mótið, 19. september 2026, Helgi Áss Grétarsson (2420) – Andras Ilko-Toth (2263), staðan eftir 13…Dd8-Dc7?!
Hér lék ég 14. Rg5! og setti óþægilega pressu á svörtu stöðuna vegna máthótunarinnar á h7 og svo taktískra leppunarmöguleika á c-línunni. Hinn ungi andstæðingur minn brágst ekki rétt við:
14…Rf5?? 15. cxd5 Dd8 16. dxe6 Re4 17. exf7+ Kh8 18. Rc4 Dxg5 19. Bxe4 Rd6 20. Hxd6 Bxe4 21. Dd1 Hxf7
1stm, Opna 6 daga mótið, 19. september 2026, Helgi Áss Grétarsson (2420) – Andras Ilko-Toth (2263), staðan eftir 13…Hf8-xf7
Hér gat sá gamli sýnt að taktík er ekki alveg horfin úr æðum hans: 22. Re5! Dxc1 23. Hd8+! Hxd8 24. Rxf7+ Kg8 25. Dxc1 Kxf7 26. Dc7+ og svartur gafst upp skömmu síðar.
Lokaniðurstaða opna mótsins varð því sú að ég fékk helming vinninga, 4½ vinning af 9 mögulegum. Vegna þessarar frammistöðu tapaði ég 16 skákstigum, sléttum! Svigrúmið fyrir lokaða stórmeistaraflokkinn var því ekki mikið, ef markmiðið ætti að nást, að tapa ekki meira en 20 skákstigum.
Sigurvegari opna mótsins, hinn 16 ára indverski alþjóðlegi meistari, Parvathareddy Santhosh Ajay (2477), var stigahæsti keppandinn í lokaða flokknum, en á opna mótinu fékk hann 6 ½ vinning af 9 mögulegum ásamt hinum áðurnefnda Vitaly Sivuk (2476).
Verkefni mín í Búdapest voru því ekki beinlínis að léttast en um lokaða mótið verður fjallað í framhaldspistli!

















