Skákskóli Íslands stendur áhugasömum opinn frá kl. 16:00 þriðjudaginn 3. júní næstkomandi.

Þar gefst ungmennum, foreldrum og öðrum áhugasömum, kostur á því að kynna sér starfsemi skólans.

Nýtt kennsluefni verður til sýnis og gefst áhugasömum kostur á því að spreyta sig á snúnum viðfangsefnum sem nemendur skólans hafa lagt stund á.

Kennsluefni Skákskólans verður til sýnis

Stigahæsti skákmaður Íslands, stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson, teflir fjöltefli við gesti og gangandi. Fjölteflið hefst kl. 19:00. Verðlaun eru í boði fyrir þann sem vinnur meistarann!

Vignir Vatnar Stefánsson – Mynd: Dagur Ragnarsson.

Heitt á könnunni og allir velkomnir!

- Auglýsing -