VignirVatnar.is heldur áfram með Le Kock mótaröðina í samvinnu við Le Kock og Ölvisholt. Annað mótið fer fram miðvikudagskvöldið 4. júní kl 19.30 á Le kock. (Tryggvagata 14, 101 Reykjavík).

Fyrsta mótið fór fram í maí þar sem stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson varð hlutskarpastur.

Mótin verða 8 í heildina og eru dagsetningarnar á þeim yfirleitt fyrsti miðvikudagurinn í hverjum mánuði.

Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 3+2 og á öllum mótunum verða verðlaun eftirfarandi:

1. 60,000kr + Gjafakarfa frá Innnes

2. 40,000kr + Gjafakarfa frá Innnes

3. 20,000kr + Gjafakarfa frá Innnes

U2000: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes

Efsti stigalausi: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes

Efsta konan: 10,000kr gjafabréf á Le kock og Deig + Gjafakarfa frá Innnes

Öll mótin verða reiknuð til alþjóðlegra skákstiga.

Stigagjöfin verður með Eurovision stigakerfi. 

Svona verða stigin eftir sætum, frá fyrsta og niður: 12, 10, 8, 7, 6, 5, 4, 3, 2, 1.

Stig í mótaröðinni eftir fyrsta mót

1. GM Hannes Stefánsson – 12 stig
2. IM Björn Þorfinnsson – 10 stig
3. IM Dagur Ragnarsson – 8 stig
4. GM Bragi Þorfinnsson – 7 stig
5. FM Bárður Örn Birkisson – 6 stig
6. FM Simon Þórhallsson – 5 stig
7. FM Sigurbjörn Björnsson – 4 stig
8. FM Róbert Lagerman – 3 stig
9. CM Björn Holm Birkisson – 2 stig
10. Benedikt Briem – 1 stig

12 efstu keppendur á samanlögðum stigum (6/8 bestu mótum gilda) tefla svo til úrslita í beinni útsendingu, þar verða verðlaunin eftirfarandi:

  1. X TBA

  2. X TBA

  3. X TBA

Þátttökugjald á mótið er 3.000kr og greiðist hér:
Kennitala: 570418-2030 – Reikningsnúmer: 0133-26-013982

Áskrifendur VignirVatnar.is fá frítt í mótið!

Mótið er opið fyrir öllum en keppendur undir 15 þurfa að vera með forráðamann með sér.

Hlökkum til að sjá ykkur á þessum frábæra veitingastað!

Kær kveðja, Le Kock og VignirVatnar.is

- Auglýsing -