Dramatíkin hélt áfram í áttundu umferð Íslandsmótsins nú fyrr í dag. Aleksandr Domalchuk-Jonasson er orðinn einn efstur fyrir lokaumferðina en hann lagði Hilmi Frey Heimisson að velli í umferðinni. Vignir Vatnar gerði jafntefli við stórmeistarann Ivan Schitco en Hannes Hlífar varð að lúta í dúk gegn Ivan Sokolov.

Á efsta borði sætti Vigni sig við jafntefli í rólegri stöðu gegn Ivan Schitco. Eins og úrslitin lentu gæti jafnteflið hafa verið besta í stöðunni fyrir Vigni. Sannleikurinn kemur í ljós á morgun!

Ivan gerði Hannesi grikk með því að leggja hann með svörtu. Ivan fórnaði peði og virtist fyrst um sinn ekki hafa nóg fyrir það en smátt og smátt urðu menn hans virkir og áhættan sem hann tók borgaði sig.

Sigur Aleksandrs gegn Hilmi var einstaklega mikilvægur. Hilmir hafði tögl og haldir lengst af en Sasha stóð af sér frumkvæði svarts og náði að vinna endataflið eftir að Hilmir teygði sig of langt í að reyna að búa eitthvað til.

Bragi náði í mikilvægan sigur og á séns á titlinum eftir að hann lagði Sigurbjörn að velli. Sigurbjörn missti peð í miðtaflinu en sýndi svo skemmtileg tilþrif í úrvinnslunni.

Áskell fór langt með að tryggja sér öldungatitilinn, Guðrún Fanney og Lenka munu berast um kvennaverðlaunin og ungmennatitilinn fer til Aleksandrs eða Vignis!

Úrslit 8. umferðar:

Staðan eftir 8 umferðir:

Vignir og Aleksandr eru efstir í ungmennaflokki, Lenka er efst í kvennaflokki og Áskell er efstur öldunga.

Pörun 9. umferðar:

Ivan Sokolov hefur hvítt gegn Aleksandr Domalchuk-Jonassyni. Sviðsmyndin er einföld, ef Aleksandr vinnur þá er hann Íslandsmeistari. Ivan Sokolov gæti hjálpað Braga og Vigni með því að leggja hann á velli en þá þurfa Bragi og Vignir að vinna sínar skákir með svörtu. Fyrirfram fær Vignir betri pörun en hann þarf að leggja Adam að velli með svörtu. Adam hefur verið funheitur á mótinu þannig að Vignir hefur ekki efni á að vanmeta andstæðing sinn.

- Auglýsing -