Lokaumferðin á 100 ára Afmælismóti Skáksambands Íslands, opna Íslandsmótinu er komin af stað. Aleksandr Domalchuk-Jonasson er einn efstur fyrir lokaumferðina með 6,5 vinning. Fjórir koma í humátt á eftir honum með 6 vinninga og spennandi lokaumferð framundan.
Aleksandr hefur svart gegn Ivan Sokolov, Ivan yngri hefur hvítt gegn Braga og Adam hefur hvítt gegn Vigni.
Lenka og Guðrún Fanney berjast um Íslandsmeistaratitil kvenna og ræðst það í lokaumferðinni. Áskell stendur vel í öldungabaráttunni og Aleksandr og Vignir standa best að vígi í ungmennakeppninni.
Umferðina má skoða í glugganum hér að neðan eða með því að smella á tengilinn neðst.
- Beinar útsendingar á lichess (15 mínútna töf)
- Mótið á chess-results
- Auglýsing -














