Stórskemmtilegu hraðskákmóti, Blönduós Blitz, lauk nú fyrir skemmstu. Fyrirkomulagið var skemmtilegt þar sem tefldar voru 9 umferðir til að finna fjóra efstu, „Final Four“ sem tefldu svo undanúrslita og úrslitaeinvígi. Óhætt er að segja að Félagsheimilið á Blönduósi hafi hentað frábærlega fyrir þetta fyrirkomulag og stemmningin skemmtileg þegar undanúrslit og úrslitaeinvígin fóru fram.
Eftir spennandi keppni varð það moldóvski stórmeistarinn Ivan Schitco sem stóð uppi sem sigurvegari.
Rennum yfir gang mála á mótinu og sjáum nokkur brot úr skákum.
Strax í fyrstu umferð náði Páll Leó Jónsson góðum úrslitum en hann gerði jafntefli við stigahæsta mann mótsins, hinn gamalreynda Zurab Azmaiparashvili, formann Evrópska Skáksambandsins (ECU).

Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson hóf mótið eins og stormsveipur og vann fyrstu sex skákir sínar. Í fjórðu umferð lagði hann Hannes Hlífar Stefánsson að velli. Tilfærsla hans, Dd8-a5-h5 var innblásinn af skemmtilegri hrókstilfærslu Friðriks Ólafssonar Hh8-h5-c5 sem var einmitt stúderuð í gær í kjölfarið á skák Braga gegn Ivan Schitco, sem sjá má í samantektarvídeói lokaumferðar Íslandsmótsins.
Vignis valtarinn hélt áfram þegar hann gjösamlega slátraði Ivan Sokolov með hvítu í Catalan í rétt rúmlega 20 leikjum.
Vignir var loks stöðvaður í sjöundu umferð þegar Ivan Schitco lagði hann að velli. Næstu umferðir voru æsispennandi þar sem topp 4 réðust ekki fyrr en í síðustu umferð.

Eftir jafntefli við Ingvar Wu í 8. umferð þar sem Vignir slapp með skrekkinn var sæti hans í topp 4 allt í einu komið í hættu þar sem hann fékk svart gegn Zurab. Tap gegn Zurab hefði þýtt að Vignir hefði dottið úr úrslitakeppninni. Vignir var vandanum vaxinn og náði í flottan sigur á Georgíumanninum.

Hinir fjórir fræknu urðu á endanum:
Vignir Vatnar Stefánsson
Ivan Schitco
Hannes Hlífar Stefánsson
Björn Þorfinnsson
Undanúrslitin voru Vignir-Björn og Ivan-Hannes

Hannes komst í erfiða stöðu þegar hann tapaði fyrri skákinni nokkuð illa í 21. leik
Góð ráð dýr en Hannes virtist vandanum vaxinn og var kominn með vænlegt endatafl þegar hann missti þráðinn.
38.Rxb6? kæruleysi 38…Hh8! og allt í einu eftir 39.Hd7+ Kg6 kemur á daginn að svartur á þráskák, eina leiðin til að verjast mátinu 40.Kg1 leyfir 40…Re2+ og staðan verður endurtekin.

Einvígi Björn og Vignis varð stórskemmtilegt. Vigni hafði hvítt í fyrri skákinni og áttu þeir báðir sénsa hér og þar í miðtaflinu en að lokum fjaraði staðan út í steindautt hróksendatafl.
Í seinni skákinni tefldi Björn mjög beitt og var með mjög fín færi. Björn opnaði taflið en missti af nokkrum „killerum“ í stöðunni.
Hér hefði 27.e6! verið ansi sterkur. De5 er hótunin og h8 og b5 hanga og svartur er í köðlunum. Vignir varðist vel og tók loks frumkvæðið og sneri taflinu sér í hag og tryggði sætið í úrslitum.

Úrslitaeinvígið var spennandi. Ivan vann fyrstu skákina, byrjunin heppnaðist ekki vel hjá Vigni og Ivan refsaði.
Vignir sýndi karakter og kom til baka í seinni skákinni. Hann hefði þó getað stytt sér leið hér:
17.Rb5! hefði verið nokkuð smekklegur og svartur er í stórkostlegum vandræðum!
Vignir vann þrátt fyrir allt og komið að Armageddon úrslitaskák!
Ivan tefldi úrslitaskákina vel, en hann valdi hvítt í Armageddon hafði 5 mínútur gegn 4 mínútum Vignis. Ivan vann peð og náði að klára endataflið og tryggja sér sigurinn.





-

Elstur og yngstur á mótinu, 87 ára og 5 ára!! - Mótið á chess-results













