Skákmeistaramót Mosfellsbæjar fór fram í gær í tengslum við bæjarhátíðina „Í túninu heima“ og tókst einstaklega vel í alla staði.
Mótið var fjölmennt, spennandi skákir voru tefldar og stemningin var frábær meðal bæði keppenda og áhorfenda.
Að loknum sjö umferðum stóðu FIDE-meistararnir Óliver Jóhannesson og Örn Leó Jóhannsson efstir með 6 vinninga hvor. Upphaflega sýndi tölvuforritið að Örn Leó hefði unnið mótið, en það byggðist á óhefðbundnum tie-break reglum sem forritið var sjálfkrafa stillt á. Að höfðu samráði ákváðu dómarar mótsins að réttast væri að láta þá deila titlinum Skákmeistari Mosfellsbæjar – líkt og gerðist þegar Magnus Carlsen og Ian Nepomniachtchi deildu heimsmeistaratitli á sínum tíma.
Eðlilegar tie-break reglur hafa nú verið leiðréttar á þeim lista sem birtur er með lokaniðurstöðu mótsins.
Stillingaratriðið breytti þannig aðeins formlegri röð efstu manna, en breytti þó ekki þeirri staðreynd að forseti Skáksambands Íslands, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, endaði ein í þriðja sæti með 5,5 vinninga og tryggði sér þar með verðlaunapallsæti.
Apótekarinn veitti glæsilega vinninga fyrir efstu þrjá keppendur mótsins, auk þess sem veitt voru verðlaun fyrir sigur í flokkum undir 10 ára og undir 16 ára.
Nýstofnað Skákfélag Mosfellsbæjar vill jafnframt færa öllum keppendum og gestum kærar þakkir fyrir frábæra þátttöku og stuðning á þessum fyrsta viðburði félagsins. Þessi góða mæting og jákvæða stemning gefur mikið byr í seglin fyrir áframhaldandi uppbyggingu skákstarfs í Mosfellsbæ.
👉 Lokastaða mótsins:



















