Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2374) hóf í dag keppni á Sahel Chess Festival Open A sem fram fer á Amir Palace Hotel í Monastir í Túnis! Um er að ræða níu umferða mót teflt eftir svissneska kerfinu og er Aleksandr í A-flokki á mótinu.

Alls eru 21 keppendur í A-flokki og er Norðmaðurinn Johan-Sebastian Christiansen (2655) þeirra langstigahæstur. Norðmaðurinn hefur verið duglegur að stunda elóstiga-búskap og velur mót eftir því. Aleksandr er næststigahæstur á mótinu.

Í fyrstu umferð mætti Aleksandr heimamanninum Sahbi Taeib (2140) sem er CM. Sasha hafði svart og tefldi sikileyjarvörn. Sasha þurfti að bíða lengi þolinmóður í skotgröfunum og það var ekki fyrr en í 38. leik sem hvítur gaf eftir með 38.g3? og eftir það hrundi hvíta staðan nokkuð hratt.

Á morgun er tvöföldur dagur þegar umferðir tvö og þrjú fara fram. Tveir tvöfaldir dagar eru á mótinu sem fer fram dagana 2-8. september

- Auglýsing -