Það er skammt stórra högga á milli nú þegar skáklífið fer á fullt eftir sumarið á Akureyri. Haustmót Skákfélags Akureyrar, sem er meistaramót félagsins verður nú með sama sniði og í fyrra; undanrásir og úrslitakeppni. Undanrásirnar hefjast nú í vikunni.

Undanrásir verða með atskáksniði, alls sex umferðir (tvær á dag):

11. september kl. 18.00
12. september kl. 18.00
13. september kl. 13.00

Hér er fyrirkomulag nokkuð frjálslegt og geta keppendur valið um það að tefla allar umferðirnar eða bara hluta þeirra. Þeir sem það vilja (og geta) tefla sem flestar skákir en þeir sem aðeins vilja spreyta sig einn dag eða tvo eru líka velkomnir. Umhugsunartími verður 15 mín með 10 sek viðbótartíma fyrir hverja skák.

Úrslit: Þeir sex keppendur sem fá flesta vinninga í undanrásunum tefla svo til úrslita um meistaratitil félagsins, alls fimm kappskákir. Úrslitakeppnin hefst fimmtudaginn 18. september kl. 18.30. Og lýkur sunnudaginn 5.október. Ef þátttaka (og áhugi) er fyrir hendi verður öðrum keppendum boðið til b-úrslita.

Þátttaka er öllum heimil, en aðeins félagsmaður getur hampað skákmeistaratitlinum. Ekki verður innheimt þátttökugjald fyrir undanrásirnar, en í úrslitum er gjaldið kr. 4000 fyrir félagsmenn en kr. 5000 fyrir aðra.

- Auglýsing -