Úrslitakeppni Íslandsmóts Símans í netskák 2025 heldur áfram á sunnudagskvöldið með tveimur viðureignum í 16-manna úrslitum. Keppendur unnu sér inn keppnisrétt ýmis með árangri á mótinu í fyrra, stigum eða í gegnum undanmót. Útsendingin hefst 19:00 og einvígin fljótlega eftir það. Ingvar Þór og Helgi Áss munu sjá um útsendinguna að þessu sinni.
Ingvar Þór mun gera betri grein fyrir viðureignunum á Skák.is um helgina.
Á sunnudaginn mætast
- Róbert Lagerman – Jón Kristinn Þorgeirsson (hefst kl. 19)
- Dagur Ragnarsson – Björn Þorfinnsson (hefst strax að fyrri viðureign lokinni)
Viðureignirnar eru á Lengjunni sem telur Jón Kristin og Björn Þorfinnsson töluvert líklegri til árangurs. Skák.is minnir á ábyrga spilun.
Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ
Viðureignir í 16 manna úrslitum
Drátturinn fyrir 16 manna úrslitum, sem fram fara á sunnudögum í september. Viðureignirnar, raðaðar í dagsetningarröð, raðaðist á eftirfarandi hátt:
- 7. september: Símon Þórhallsson – Bárður Örn Birkisson 4½ – 3½
- 7. september: Bragi Þorfinnsson – Dagur Andri Friðgeirsson 3½ – ½
- 14. september: Róbert Lagerman – Jón Kristinn Þorgeirsson
- 14. september: Dagur Ragnarsson – Björn Þorfinnsson
- 21. september: Helgi Áss Grétarsson – Björn Hólm Birkisson
- 21. september: Vignir Vatnar Stefánsson – Aleksandr Domalchuk-Jonasson
- 28. september: Birkir Ísak Jóhannsson – Jóhann Hjartarson
- 28. september: Jóhanna Björg Jóhannsdóttir – Ingvar Þór Jóhannesson
Í átta manna úrslitum mætast
- Bárður – Birkir-Jóhann
- Dagur R-Björn Þ – Bragi
- Róbert-Jón Kristinn – Helgi Áss-Björn Hólm
- Jóhanna-Ingvar Þór – Vignir-Aleksandr
Dagskrá
Mótið fer fram á sunnudögum frá 7. september til 30. nóvember 2025, samkvæmt eftirfarandi dagskrá:
- 7. september 2025: Netskák dagur 1 (16 manna úrslit, 6 skákir)
- 14. september 2025: Netskák dagur 2 (16 manna úrslit, 6 skákir)
- 21. september 2025: Netskák dagur 3 (16 manna úrslit, 6 skákir)
- 28. september 2025: Netskák dagur 4 (16 manna úrslit, 6 skákir)
- 2. nóvember 2025: Netskák dagur 5 (8 manna úrslit, 6 skákir)
- 9. nóvember 2025: Netskák dagur 6 (8 manna úrslit, 6 skákir)
- 23. nóvember 2025: Netskák dagur 7 (undanúrslit, 6 skákir)
- 30. nóvember 2025: Netskák dagur 8 (úrslit, 10 skákir)
Tímamörk verða 3+2 og nákvæmar tímasetningar útsendinga verða tilkynntar síðar. Mótið fylgir útsláttarfyrirkomulagi, þar sem keppendur detta út eftir tap þar til einn stendur uppi sem sigurvegari.
Verðlaun
Verðlaunafé mótsins hefur verið hækkað um 100.000 kr. og er nú sem hér segir:
- 200.000 kr.
- 100.000 kr.
- 25.000 kr.
- 25.000 kr.














