Undanrásir Íslandsmótsins í netskák fóru fram í gærkvöld, miðvikudaginn 27. ágúst á skákþjóninum Chess.com þar sem hart var barist í 11. umferðum af 3+2 netskákum. Í boði var keppnisréttur á Íslandsmótinu í netskák sem verður í beinni á Sjónvarpi Símans og netrásum RÍSÍ eins og í fyrra!
Leikar enduðu þannig að Dagur Ragnarsson varð hlutskarpastur með 9,5 vinning úr umferðunum 11 og var landsliðsmaðurinn í nokkrum sérflokki, tapaði ekki einni einustu skák þótt hætt var hann kominn í nokkrum þeirra!

Nokkrir titilhafar fylgja með inn í lokamótið. FIDE-meistararnir Jón Kristinn og Bárður Örn fengu 8 vinninga. Með 7,5 komu Birkir Ísak Jóhannsson og Dagur Andri Friðgeirsson nokkuð óvænt. Daði Ómarsson vann sér einnig sæti en gaf það eftir. CM Björn Hólm var inni á oddastigum á kostnað FM Róberts Lagerman en þar sem Daði tekur ekki þátt fær Róbert sæti á mótinu! Markús Orri var grátlega nálægt en varð úti á oddastigum.
Forsetinn Jóhanna Björg Jóhannsdóttir tók kvennasætið en keppnin þar var mjög hörð og réðust úrslit ekki fyrr en í lokaumferðinni.
Lokamótið fer fram með áþekku fyrirkomulagi og á síðasta ári. Sjálf 16 manna úrslitin hefjast 7. september.
Keppendur í 16 manna úrslitum verða valdir á eftirfarandi hátt.
- Keppendur sem komust í átta manna úrslita á Síminn Invitational vorið 2025 (varamenn úr undanrásunum núna)
- Þrír stigahæstu skákmenn landsins með virk FIDE-hraðskákstig 1. ágúst 2025 sem falla ekki undir nr. 1 (varamenn næstu virku menn á hraðskákstigum)
- Fjórir efstu í undanrásunum sem fram fara 27. ágúst (varamenn úr undanrásunum)
- Efsta kona í undanrásunum sem fram fara 27. ágúst (varamenn næstu konur úr undanrásunum) Ef kona nær að tryggja sig inn í gegnum undanrásirnar (lið 3) bætist þetta sæti við undanrásirnar óháð kyni.
Í úrslitakeppninni verða tefld sex skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 3½ vinning. Í úrslitum verður 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.
Gert er ráð fyrir að úrslitin fari fram 30. nóvember. Nánar verður greint frá fyrirkomulagi og dagsetningum úrslitakeppninnar á næstu dögum.
Verðlaun í aðalkeppninni
- 175.000 kr.
- 75.000 kr.
Engin verðlaun, nema keppnisréttur í úrslitakeppninni, eru í undanrásunum.
Eftirtaldir hafa þegið boð um þátttöku. Átta sæti verða í boði í undanrásunum.
- GM Vignir Vatnar Stefánsson (átta manna úrslit)
- IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (átta manna úrslit)
- GM Bragi Þorfinnsson (átta manna úrslit)
- FM Ingvar Þór Jóhannesson (átta manna úrslit)
- FM Símon Þórhallsson (átta manna úrslit)
- GM Helgi Áss Grétarsson (skákstig)
- IM Björn Þorfinnsson (skákstig)
- GM Jóhann Hjartarson (skákstig)
- IM Dagur Ragnarsson (undanmót)
- FM Jón Kristinn Þorgeirsson (undanmót)
- FM Bárður Örn Birkisson (undanmót)
- Birkir Ísak Jóhannsson (undanmót)
- Dagur Andri Friðgeirsson (undanmót)
- CM Björn Hólm Birkisson (undanmót)
- FM Róbert Lagerman (undanmót)
- WCM Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (undanmót)
















