Úrslitakeppni Íslandsmóts Símans í netskák 2025 hefst sunnudaginn 7. september og stendur yfir til 30. nóvember. Mótið, sem er skipulagt af Rafíþróttasambandi Íslands í samstarfi við Skáksamband Íslands, Sjónvarpi Símans. Keppt er eftir útsláttarfyrirkomulagi, þar sem 16 sterkir skákmenn etja kappi um titilinn Íslandsmeistari í netskák.

Keppendalisti

Mótið skartar glæsilegum hópi keppenda, þar á meðal stórmeisturum, alþjóðlegum meisturum og fleiri sterkum skákmönnum. Hér er listi yfir keppendur, ásamt skákstigum og hvernig þeir öðluðust þátttökurétt:

  1. GM Vignir Vatnar Stefánsson (2590) – Átta manna úrslit
  2. GM Helgi Áss Grétarsson (2416) – Hraðskákstig
  3. IM Björn Þorfinnsson (2400) – Hraðskákstig
  4. GM Jóhann Hjartarson (2381) – Hraðskákstig
  5. FM Ingvar Þór Jóhannesson (2372) – Átta manna úrslit
  6. FM Jón Kristinn Þorgeirsson (2336) – Undanrásir
  7. IM Dagur Ragnarsson (2315) – Undanrásir
  8. FM Símon Þórhallsson (2278) – Átta manna úrslit
  9. GM Bragi Þorfinnsson (2267) – Átta manna úrslit
  10. IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2259) – Átta manna úrslit
  11. FM Róbert Lagerman (2253) – Undanrásir
  12. Birkir Ísak Jóhannsson (2218) – Undanrásir
  13. FM Bárður Örn Birkisson (2216) – Undanrásir
  14. CM Björn Hólm Birkisson (2139) – Undanrásir
  15. WCM Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (2054) – Undanrásir
  16. Dagur Andri Friðgeirsson (2023) – Undanrásir

Úrslit undanrásanna

Keppendur koma úr undanrásum, átta manna úrslitum frá fyrri mótum og byggt á hraðskákstigum, sem tryggir hörkuspennandi viðureignir.

Dregið verður um töfluröð á morgun.

Dagskrá

Mótið fer fram á sunnudögum frá 7. september til 30. nóvember 2025, samkvæmt eftirfarandi dagskrá:

  1. 7. september 2025: Netskák dagur 1 (16 manna úrslit, 6 skákir)
  2. 14. september 2025: Netskák dagur 2 (16 manna úrslit, 6 skákir)
  3. 21. september 2025: Netskák dagur 3 (16 manna úrslit, 6 skákir)
  4. 28. september 2025: Netskák dagur 4 (16 manna úrslit, 6 skákir)
  5. 2. nóvember 2025: Netskák dagur 5 (8 manna úrslit, 6 skákir)
  6. 9. nóvember 2025: Netskák dagur 6 (8 manna úrslit, 6 skákir)
  7. 23. nóvember 2025: Netskák dagur 7 (undanúrslit, 6 skákir)
  8. 30. nóvember 2025: Netskák dagur 8 (úrslit, 10 skákir)

Tímamörk verða 3+2 og nákvæmar tímasetningar útsendinga verða tilkynntar síðar. Mótið fylgir útsláttarfyrirkomulagi, þar sem keppendur detta út eftir tap þar til einn stendur uppi sem sigurvegari.

Verðlaun

  1. 175.000
  2.   75.000

- Auglýsing -