Alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2374) vann í dag sigur í sjöundu umferð á Sahel Chess Festival Open A sem fram fer á Amir Palace Hotel í Monastir í Túnis!
Sasha var með 4 vinninga af 6 fyrir skákina og í námunda við efstu menn. Sasha hafði svart og upp kom frönsk vörn en afbrigðið sem hvítur valdi er frekar meinlaust og og leikaðferð svarts nokkuð góð gegn þessu afbrigði. Svartur fékk strax þægilegt tafl og svo betra tafl með biskupaparið, nokkuð bótalaust.
Hvítur endaði alla baráttu með því að koma drottningu sinni fjarri öllum vígvöllum úti í horni og þá gat Sasha blásið til lokasóknar á hvíta kónginn.
Aleksandr hefur aftur svart í 8. umferð og nú gegn stórmeistaranum Amir Zaibi (2339) sem er heimamaður. Aleksandr er í öðru sæti á mótinu á eftir stigasafnaranum norska, Johan-Sebastien Cristiansen (2655).

















