Önnur umferð á Haustmóti TR fór fram föstudagskvöldið 5. september. Veðrið lék við landann, Azerbaijan lá í valnum í Laugardalnum og ekki vantaði tilþrifin í Friðrikssalnum í Faxafeni! Kíkjum á hvað gerðist í 2. umferðinni.

A-flokkur

Íslandsmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson þurfti að koma sterkur til baka eftir óvænt tap í fyrstu umferðinni gegn landsliðsmanninum Degi Ragnarssyni. Vignir hafði svart gegn Oliver Aron Jóhannessyni. Oliver beitti London-kerfinu sem greinarhöfund rekur ekki minni til að hafa séð frá honum áður.

Vigni beitti „systemi“ sem Tiviakov mælir með í fínni bók, „Rock Solid Chess“, og komst Vignir vel úr byrjuninni og fékk aðeins betra tafl. Oliver afréð að fórna peði til að reyna að fá spil en Vignir náði að halda góðri stjórn á stöðunni og herti tökin jafnt og þétt þar til liðstap var óumflýjanlegt hjá Oliver.

Þeir Bárður og Dagur fór óvænt í skógarfylgsni Botvinnik afbrigðisins þar sem mikil hætta er að lenda í einhverskonar mýri á báða bóga!

Staðan eftir 19. leik hvíts er ennþá teoría og gríðarlegur fjöldi skáka sem hafa teflst í þessari stöðu.

Eins gott að hafa sitt á hreinu hér! Dagur var fyrstur að missa þráðinn í teoríunni og Bárður fékk þægilegra endatafl en að lokum skildu keppendur jafnir.

Jafnteflið hjá Birni og Þorsteini var öllu friðsamara. Björn komst lítið áleiðis með hvítu og Þorsteinn bauð upp á friðarpípu sem var samþykkt.

Lenka hafði betur gegn syni sínum, Josef. Staða Josefs með svörtu molnaði niður taktísk í miðtaflinu og Lenka virtist ætla að vinna auðveldan sigur með drottningu fyrir hrók og mann. Samblanda af baráttu Josefs og einhvers kæruleysis í úrvinnslunni þýddi að Lenka endaði á að þurfa að hafa tölvuert fyrir sigrinum og Josef ekki langt frá því að ná í „fortress“ í lokin.

Adam og Björn Hólm skildu jafnir. Adam náð smá pressu í endataflinu þar sem hann var peði yfir en Björn var vandanum vaxinn í vörninni og raun aldrei í taphættu.

Enginn hefur fullt hús í A-flokknum og gæti orðið jöfn og spennandi barátta á mörgum vígsstöðvum næstu daga!

B-flokkur

Tveimur skákum var frestað í B-flokki en eini keppandinn með fullt hús er Ingvar Wu Skarphéðinsson sem kemur sterkur til leiks.

Ingvar hafði svart gegn Sigurði Páli. Tefldu þeir Catalan-byrjun eins og hér væri á ferð stórmeistaraslagur á níunda áratugnum, þung taflmennska! Sigurður hélt vel á spöðunum lengst af og hafði þetta týpíska aðeins betra tafl sem hvítur hefur oft. Ingvar var hinsvegar traustur og greip sín taktísku færi sannfærandi þegar fór að saxa á tíma Sigurðar nálægt tímamörkunum.

Jón Traust og Sverrir skildu jafnir. Skák þar sem Jón vildi skapa sér færi en náði því ekki, eitthvað ryð í gangi. Sverrir missti í raun af jafntefli í blálokin, lærdómsríkt peðsendatafl!

Hér var 34…a5? leikið en svartur gat gert betur!

Benedikt byggði upp góða sóknarstöðu gegn Jóhanni og virtist vera að brjótast í gegn en missti tökin í tímahraki. Greinilegt var að skákin, sem var ein af lengstu í umferðinni, hafði tekið mikla orku því að í endataflinu skiptust keppendur á yfirsjónum en á endanum taldi umframpeðið sem Jóhann vélaði til sín undir lok fyrstu tímamarka.

Eins og áður sagði tvær frestanir og of snemmt að lesa í stöðuna en Ingvar byrjar vel!

C-flokkur

C-flokkurinn var skemmtilegur, gaman að fylgjast með ungu krökkunum fást við þá eldri og reyndari.

Kristján Geirsson lagði Birki en Birkir hefur haft betur gegn honum í undanförum viðureignum. Arnar vann í hörkuskák og Haukur hafði betur í stöðubaráttu í franskri vörn í hörkuskák. Roberto samdi af sér með hartnær unnið endatafl og Kristján og Pétur áttu við í epískri skák með alvöru sviptingum!

Opinn flokkur

Þeir Þormar, Þór Jökull, Nirvaan, Karma lönduðu sigrum og hafa allir fullt hús eftir tvær umferðir í opna flokknum.

 

- Auglýsing -