Tvær viðureignir fóru fram í 16-manna úrslitum Íslandsmóts Símans í netskák 2025 og tryggðu þeir Jón Kristinn Þorgeirsson og Björn Þorfinnsson sig áfram í 8-manna úrslitum með góðum sigrum.

Fyrri viðureign kvöldsins var á milli Róberts Lagerman og Jóns Kristins Þorgeirssonar. Fyrirfram var Jón Kristinn (Jokkó) talinn líklegri var með stuðulinn 1.45 gegn 2.37 hjá Róbert. Kynslóðabil hér og Jokkó kannski vanari músabarning en Róbert verið mjög heitur undanfarið í hraðskák yfir borðinu.

Jón Kristinn hóf leik með látum í fyrstu skákinni. Jón hafði hvítt og þeyttist fram með h-peð sitt og beið með að hróka. Strax í 16. leik landaði Jón rosalegri sleggju og Róbert ekki kominn í gang og strax kominn undir!

Róbert sýndi mikinn karakter og svaraði að bragði með því að vinna skák númer tvö. Róbert var þó lengi í köðlunum í þeirri skák og Jokkó setti mikla pressu á hann með því að fórna snemma peði og ráðast á kóngsstöðu Róberts.

Í þriðju skákinni vélaði Jokko skiptamun af Róbert í miðtaflinu.

19.Bxc6 Bxc6 20.d5 Bd7 21.Ba7 og svartur tapar liði!

Jokkó tók líka fjórðu skákina, Robbi missti tökin í miðtaflinu og Jokkó fékk mjög þægilega stöðu og svo komu taktísk mistök hjá Robba.

Staðan 3-1 fyrir Jokkó og hann innsiglaði sigurinn í næstu skák með skemmtilegum lokahnykk…Róbert skák og mát í skákinni og einvíginu!

Flestir áttu von á meiri spennu í seinna einvígi kvöldsins og á endanum rættist sú spá! Alþjóðlegu meistararnir Dagur Ragnarsson og Björn Þorfinnsson áttust þá við og taldi Lengjan Björn líklegri með stuðul 1.5 gegn 2.23 hjá Degi.

Fyrsta skákin endaði með jafntefli, taflmennskan öllu yfirvegaðri hjá báðum miðað við einvígið á undan og bátum ekki ruggað.

Björn tók forystu með yfirveguðum sigri í skák númer tvö. Björn nostraði við umframpeð í endatafli sem hann hafði náð með því að þjarma að veikleika í stöðu Dags. Dagur fékk einn séns að ná mótspili í hróksendataflinu en missti af því og því fór sem fór.

Dagur virtist ætla að ná að jafna í þriðju skákinni með glimrandi taflmennsku. Dagur tók stjórn á svörtum reitum borðsins og stóð líklega hartnær til vinnings. Úrvinnslan hefði getað verið betri og loks fataðist Degi flugið og missti skákina niður í jafntefli en þá lenti hann í „mouseslip“ og missti skákina loks niður í tap, grátlegt!

Fjórða skákin fór ekki vel af stað hjá Degi, hann mouseslippaði aftur, nú í 3. leik!

Dagur náði þó að redda skákinni í jafntefli og vantaði herslumuninn til að knésetja Björn að lokum.

Fimmta skákin var nú algjört „must win“ hjá Degi en hann fékk mjög lítið og stóð verr ef eitthvað var í endataflinu. Björn missti þráðinn, tapaði skiptamun og Dagur kominn aftur inn í einvígið!

Björn innsiglaði sigurinn í sjöttu skákinni þrátt fyrir fína spretti hjá Degi sem náði að gera einvígið mjög spennandi.

Lokaniðurstaðan 3,5-2,5 Birni í vil!

Útsending kvöldsins í heild sinni:

Hægt er að fylgjast með útsendingunum á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ

Viðureignir í 16 manna úrslitum

Drátturinn fyrir 16 manna úrslitum, sem fram fara á sunnudögum í september. Viðureignirnar, raðaðar í dagsetningarröð, raðaðist á eftirfarandi hátt:

  1. 7. september: Símon Þórhallsson – Bárður Örn Birkisson 4½ – 3½
  2. 7. september: Bragi Þorfinnsson – Dagur Andri Friðgeirsson 3½ – ½
  3. 14. september: Róbert Lagerman – Jón Kristinn Þorgeirsson 1-4
  4. 14. september: Dagur Ragnarsson – Björn Þorfinnsson 2½ – 3½
  5. 21. september: Helgi Áss Grétarsson – Björn Hólm Birkisson
  6. 21. september: Vignir Vatnar Stefánsson – Aleksandr Domalchuk-Jonasson
  7. 28. september: Birkir Ísak Jóhannsson – Jóhann Hjartarson
  8. 28. september: Jóhanna Björg Jóhannsdóttir – Ingvar Þór Jóhannesson

Í átta manna úrslitum mætast

  • Bárður – Birkir-Jóhann
  • Björn Þ – Bragi
  • Jón Kristinn – Helgi Áss-Björn Hólm
  • Jóhanna-Ingvar Þór – Vignir-Aleksandr

Dagskrá

Mótið fer fram á sunnudögum frá 7. september til 30. nóvember 2025, samkvæmt eftirfarandi dagskrá:

  1. 7. september 2025: Netskák dagur 1 (16 manna úrslit, 6 skákir)
  2. 14. september 2025: Netskák dagur 2 (16 manna úrslit, 6 skákir)
  3. 21. september 2025: Netskák dagur 3 (16 manna úrslit, 6 skákir)
  4. 28. september 2025: Netskák dagur 4 (16 manna úrslit, 6 skákir)
  5. 2. nóvember 2025: Netskák dagur 5 (8 manna úrslit, 6 skákir)
  6. 9. nóvember 2025: Netskák dagur 6 (8 manna úrslit, 6 skákir)
  7. 23. nóvember 2025: Netskák dagur 7 (undanúrslit, 6 skákir)
  8. 30. nóvember 2025: Netskák dagur 8 (úrslit, 10 skákir)

Tímamörk verða 3+2 og nákvæmar tímasetningar útsendinga verða tilkynntar síðar. Mótið fylgir útsláttarfyrirkomulagi, þar sem keppendur detta út eftir tap þar til einn stendur uppi sem sigurvegari.

Verðlaun

Verðlaunafé mótsins hefur verið hækkað um 100.000 kr. og er nú sem hér segir:

  1. 200.000 kr.
  2. 100.000 kr.
  3.   25.000 kr.
  4.   25.000 kr.
- Auglýsing -