Þröstur Þórhallsson

Fjórir Íslendingar eru skráðir til leiks á EM öldunga sem hefst í Rabac í Króatíu í dag. Það eru þeir GM Margeir Pétursson og FM Þorsteinn Þorsteinsson í 65+ flokknum og GM Þröstur Þórhallsson og Erlingur Arnarson í 50+ flokknum.

Margeir og Þröstur eru meðal stigahæstu keppenda síns flokks. Margeir nr. 5 og Þröstur nr. 6. Þorsteinn er nr. 13. 

Pörun fyrstu umferðar liggur fyrir.

Ef einhver finnur mótið sýnt beint á öðrum miðlum en hér koma fram að neðan má gjarnan láta ritstjóra vita.

- Auglýsing -