Úrslitakeppni Íslandsmóts Símans í netskák 2025 hélt áfram í gærkvöld þegar tvær lokaviðureignir í 16-manna úrslitum fóru fram. Í fyrra einvígi kvöldsins lagði Jóhann Hjartarson andstæðing sinn Birki Ísak Jóhannsson að velli nokkuð örugglega og sama má segja um einvígi Ingvars Þórs Jóhannessonar og Jóhönnu sem Ingvar vann.
Birki og Jóhann hófu leik á kvöldinu. Jóhann var talinn nokkuð líklegri fyrirfram en Birkir fékk örlítið betra endatafl með hvítu mönnunum en fá færi til að nýta sér það, skákin stefndi lengi í jafntefli og endaði þannig.
Jóhann tók forystu í skák númer tvö en þar stýrði hann hvítu gegn Caro-kann vörn. Strategísk mistök Birkis í miðtaflinu skildu hann eftir með varasama kóngsstöðu og Jóhann saumaði að svörtum jafnt og þétt.
Aftur varð jafntefli þegar Birkir hafði hvítt, Jóhann vann peð en Birkir hafði mjög aktífa menn og jafntefli lógísk niðurstaða.
Jóhann náði aftur að leggja Caro-kann vörnina að velli og að þessu sinni með góðum biskup gegn riddara í endatafli.
Jóhann innsiglaði sigurinn í fimmtu skákinni sem var þó tvísýn og spennandi og einvígið mögulega orðið mjög spennandi ef Birkir hefði náð að vinna þessa skák. Svo fór ekki og Jóhann vann 4-1
4-0 sigur en knappara en tölur gáfu til kynna!
Útsending kvöldsins:
Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ
Úrslit í 16 manna úrslitum
Einvígin í 16-manna úrslitum fóru á eftirfarandi hátt:
- 7. september: Símon Þórhallsson – Bárður Örn Birkisson 4½ – 3½
- 7. september: Bragi Þorfinnsson – Dagur Andri Friðgeirsson 3½ – ½
- 14. september: Róbert Lagerman – Jón Kristinn Þorgeirsson 1-4
- 14. september: Dagur Ragnarsson – Björn Þorfinnsson 2½-3½
- 21. september: Helgi Áss Grétarsson – Björn Hólm Birkisson 4-0
- 21. september: Vignir Vatnar Stefánsson – Aleksandr Domalchuk-Jonasson 3½ – ½
- 28. september: Birkir Ísak Jóhannsson – Jóhann Hjartarson 1-4
- 28. september: Jóhanna Björg Jóhannsdóttir – Ingvar Þór Jóhannesson 0-4
Nú verður hlé á mótinu til 2. nóvember v/ EM landsliða og EM taflfélaga. Í átta manna úrslitum mætast
- Símon – Jóhann
- Björn Þ – Bragi
- Jón Kristinn – Helgi Áss
- Ingvar Þór – Vignir
Dagskrá
Eftirfarandi kvöld eru eftir:
- 2. nóvember 2025: Netskák dagur 5 (8 manna úrslit, 6 skákir)
- 9. nóvember 2025: Netskák dagur 6 (8 manna úrslit, 6 skákir)
- 23. nóvember 2025: Netskák dagur 7 (undanúrslit, 6 skákir)
- 30. nóvember 2025: Netskák dagur 8 (úrslit, 10 skákir)
Tímamörk verða 3+2 og nákvæmar tímasetningar útsendinga verða tilkynntar síðar. Mótið fylgir útsláttarfyrirkomulagi, þar sem keppendur detta út eftir tap þar til einn stendur uppi sem sigurvegari.
Verðlaun
Verðlaunafé mótsins hefur verið hækkað um 100.000 kr. og er nú sem hér segir:
- 200.000 kr.
- 100.000 kr.
- 25.000 kr.
- 25.000 kr.















