Þröstur Þórhallsson

StórmeistarinÞröstur Þórhallsson endaði í fjórða sæti á Evrópumeistaramóti öldunga í flokki 50+ en hann gerði jafntefli í lokaumferðinni. FIDE-meistarinn Þorsteinn Þorsteinsson gerði líka jafntefli í lokaumferðinni og endaði í 12. sæti, stórmeistarinn Margeir Pétursson rétti úr kútnum og vann í lokaumferðinni.

50+ flokkur

Þröstur þurfti nauðsynlega á sigri að halda og eygði Evrópumeistaratitilinn ef efsti maður, stórmeistarinn Jean-Marc Degraeve næði ekki að vinna sína skák á efsta borði. Þröstur tefldi af öryggi með svörtu og beið átekta en hvítur virtist því miður lítið ætla að þenja sig. Upp kom endatafl þar sem jafntefli voru líklegustu úrslitin en svartur hélt kannski í veika von um færi útaf a-peðinu. Hvítur þráskákaði og Evrópudraumurinn því úti í þetta skiptið.

Svo fór að lokum að Jean-Marc vann á efsta borði þannig að gullið hefði ekki náðst hvort eð er en niðurstaðan varð að lokum eilítið svekkjandi þar sem Þröstur endaði í 4. sæti á oddastigum.

6,5 vinningur hjá Þresti jafn þremur en tapaði á oddastigum, Jean-Marc tók þetta.


65+ flokkur

Þorsteinn átti einhverjar vonir um málm en samdi jafntefli á óteflda skák með svörtu í lokaumferðinni. Heimildir Skak.is segja að Aðdáendaklúbbur StoneStone hafi orðið fyrir smá vonbrigðum í fyrsta skipti á mótinu!

Margeir kláraði með vinningsskák en var ekki í beinni. Þorsteinn endaði með 6 vinninga á oddastigum en sigur í lokaumferðinni hefði líklegast þýtt þriðja sætið! Margeir endaði með 5,5 vinning og í 20. sæti. Zurab Sturua hafði betur gegn „Nonna Nunnu“ á oddastigum og varð Evrópumeistari í 65+

Fastlega má búast við fleiri íslenskum keppendum á þessum mótum á næstu árum!

- Auglýsing -