Símon opnaði mótið með sigri gegn Róbert í 6. umferð

Lokaumferð í úrslitakeppni haustmótsins var tefld í dag og úrslit eftir bókinni eins og stundum er sagt.
Markús-Áskell     1/2
Símon-Smári       1-0
Sigurður-Sigþór   1-0

Skák Akureyrarmeistarans og fráfarandi meistara félagsins vakti hér mesta athygli. Kapparnir tefldu rúlluskautaafbrigði í Nimzoindverskri vörn og var ungi maðurinn he1dur betur heima í flækjunum en sá gamli. Fetaði hann í fótspor Carlsens og vann skiptamun en gaf fyrir hann tvö peð. Fékk aðeins þægilegra tafl en missti af öflugum leik á ögurstundu og skákin leystist upp í jafntefli þar sem frelsingjar svarts á drottningarvæng dugðu honum til að halda jöfnu. Í hinum skákunum báðum vann hvítur örugglega.
Það verður því teflt einvígi um titilinn eins og í fyrra. Markús tefldi þá við Áskel, en nú verður Símon andstæðingurinn. Tefldar verða tvær atskákir (15-10) ef svo hraðskákir ef með þarf. Sigurvegarinn verður svo krýndur sem skákmeistari félagsins. Einvígið verður n.k. fimmtudag og hefst kl. 18:30.
Lokastaðan og öll úrslit hér.

- Auglýsing -