Aleksandr vann seiglusigur í dag

Íslenska sveitin í opnum flokki Evrópumóts landsliða í skák gerði í dag 2-2 jafntefli gegn sveit Kósóvó.

Viðureignin var jöfn og spennandi. Á lokametrunum náði Aleksandr Domalchuk-Jonasson að snúa erfiðri stöðu sér í hag.

Íslenska sveitin í kvennaflokki tapaði naumlega gegn Austurríki.

Aftur var það Hallgerður Helga sem náði í góðan sigur fyrir kvennaliðið en hún snéri tapaðri stöðu í mátsókn!

Hallgerður Helga við upphaf 3. umferðar. Mynd: IÞJ

Í 4. umferð mætir íslenska liðið Georgíu-4, liði sem kom inn á lokametrunum til að koma í veg fyrir oddatölufjölda liða. Allt annað en sigur hér væri algjört afhroð! Kvennaliði mætir Finnlandi sem er á þessu móti án sinnar sterkustu skákkonu.

- Auglýsing -