Landliðsmaðurinn og alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson (Sasha) tók þátt á alþjóðlegu atskákmóti í Jerúsalem í Ísrael sem lauk nú í vikunni. Aleksandr stóð sig vel, hlaut 7 vinninga í 9 skákum og hafnaði í efri hluta mótsins. Sasha virðist staðráðinn í að bera sigur úr býtum í „landakeppninni“ við Björn Þorfinnsson en þeir eiga það sameiginlega að hafa ferðast ansi víða vegna taflmennsku.
Sasha var einn af 420 keppendum á mótinu og var númer 56 í keppendaröðinni innan um fjölda titilhafa. Teflt var með tímamörkunum 15+5 fimm umferðir á þriðjudeginum og fjórar á miðvikudeginum.
Sasha vann þrjár fyrstu skákir sínar gegn stigalægri andstæðingum og mætti þá stórmeistaranum Igor Glek. Sasha fékk smá frumkvæði með svörtu, peði yfir en Glek náði að kæfa taflið og tryggja jafnteflið.
Ótrúlega auðveldur sigur vannst á stórmeistaranum Attila Czebe í fimmtu umferðinni.
Svo virðist sem andstæðingur Sasha hafði fallið á tíma í sjöttu umferð en hann hafði haft mun betra tafl með svörtu lengst af og líklegast unnið.
Eina tap Sasha kom í sjöundu umferð gegn fyrrverandi rússneskum landsliðsmanni og 2700+ stiga manni, Alekseev. Feykisterkur andstæðingur hér á ferð. Sasha laut í dúk með svörtu í armenska afbrigðinu í franskri vörn.
Í áttundu umferð náði Sasha mönnun andstæðings síns í óvænta prísund í endataflinu og vann seiglursigur, „Sasha-style“.
Lokaumferðin var jafntefli gegn ísraelskum landsliðsmanni með svörtu.
Lokaniðurstaðan hjá Sasha 7 vinningar af 9 eins og áður sagði og hækkar hann um 47 atskákstig fyrir vikið. 15. sætið var niðurstaðan og fékk Sasha verðlaun sem besti U2300 stiga maðurinn á mótinu.


















