Sunway Chess Festival hátíðin stendur nú yfir á Spáni. Meðal þátttakenda eru landsliðskonan Lenka Ptacnikova og synir hennar, Adam og Josef Omarssynir.
242 keppendur taka þátt í A-flokki og er mótið nokkuð sterkt með 13 stórmeistara á meðal keppenda. Lenka er númer 91 í styrkleikaröð, Josef er númer 137 og Adam 147.
Enn sem komið er hafa skákir þeirra ekki komist í beinar útsendingar þar sem 27 efstu borðin eru sýnd. Lenka hefur 3 vinninga að loknum 5 umferðum en Lenka hefur verið óheppin með andstæðinga og ekki enn fengið andstæðing með yfir 2000 elóstig og þrjá Indverja í röð! Adam og Josef hafa fengið harðara prógram, báðir með 3-4 andstæðinga yfir 2000 elóstigum og hafa þeir báðir 2 vinninga og mega vel við una stigalega.
- Heimasíða mótsins
- Mótið á chess-results
- Skákir á lichess (27 efstu borð)
- Auglýsing -
















