Markús Orri Jóhannsson leiðir á Meistaramóti Skákskóla Íslands, með fullu húsi vinninga, að loknum fyrsta keppnisdegi.
Mótið hófst á fjórum atskákum en lýkur með þremur kappskákum, tveimur á laugardegi og lokaumferðinni á sunnudegi.

5. umferð mótsins hefst kl. 11:00 á laugardag.

Beinar útsendingar eru frá öllum skákum mótsins
—
Meistaramót Skákskóla Íslands fer fram 19.-21. desember.
Teflt er í húsnæði Skákskóla Íslands, Faxafeni 12.
Mótið er opið öllum ungmennum, fæddum 2005 og síðar, sem tekið hafa þátt í starfsemi á vegum Skákskóla Íslands.
Engin þátttökugjöld.
Dagskrá:
1.-4. umferð kl. 17:00-20:00 föstudaginn 19. desember (atskákir, 15+5)
5. umferð kl. 11:00 laugardaginn 20. desember
6. umferð kl. 17:00 laugardaginn 20. desember
7. umferð kl. 11:00 sunnudaginn 21. desember
Í fyrstu fjórum umferðunum verða tímamörk:
15+5, 15 mínútur á alla skákina auk 5 sekúndna sem bætast við við hvern leik.
Í umferðum 5-7 verða tímamörk:
90+30, 90 mínútur á alla skákina auk 30 sekúndna sem bætast við við hvern leik.
Mótið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.
Verðlaun:
1. sæti: Ferðakostnaður á skákmót að verðmæti 50 þúsund kr. Veglegur verðlaunagripur og sæmdarheitið Meistari Skákskóla Íslands.
2. sæti: Ferðakostnaður á skákmót að verðmæti 30 þúsund kr.
3.sæti: Úttekt hjá Chessable, 15.000 kr.
Veitt verða aukaverðlaun fyrir bestan árangur miðað við eigin skákstig í eftirfarandi aldursflokkum:
17-20 ára
14-16 ára
11-13 ára
10 ára og yngri
Chessable styrkir mótið og gefur hluta verðlauna.
Verði keppendur jafnir að vinningum skal teflt um það hver telst sigurvegari mótsins. Mótsstig eru látin gilda um önnur sæti.
1. Buchholz -1
3. Sonneborn Berger
4. Innbyrðis viðureign
Miðað er við að einungis sé hægt að vinna til einna verðlauna. Verðlaunaafhending fer fram strax að móti loknu.















