Frá Óperuhöllinni í Mumbai. Mynd: Heimasíða mótsins.

Alheimsdeildin í skák (Tech Mahindra Global Chess League), þriðja tímabilið af þessari spennandi liðakeppni í skák, stendur nú yfir í Mumbai á Indlandi. Mótið hófst 14. desember og lýkur 23. desember með úrslitum. Sex lið keppa með tvöfaldri umferð þar sem efstu tvö liðin mætast í úrslitum. Hvert lið samanstendur af sex skákmönnum: Goðsögn, tveimur körlum, tveimur konum og einu ungmenni (u22). Í hverri viðureign teflir annað liðið með hvítt á öllum borðum. Sérstakt stigakerfi er notað þar sem sigur með svörtum gefur 4 stig en með hvítu 3 stig sem gerir það að verkum að svartur vinnur þegar viðureignum lýkur 3-3 nema að öllum skákunum ljúki með jafntefli. Tefldar eru 20 mínútna skákir. Viðtótartími (2 sekúndur á hvern leik) bætast við en þó ekki fyrr eftir 40 leiki. Það geur því orðið mikill hamgagangur í öskjunni.

Eftir sex umferðir (og sjö fyrir tvö lið) leiða meistarar tveggja síðustu ára, Triveni Continental Kings. Liðið er með þriggja liðsstiga forskot. Þeir hafa unnið flesta viðureignir sínar og eru með 15 liðsstig (MP) og 70 stig (GP)

Núverandi staða (liðsstig og stig)

UpGrad Mumba Masters eiga einn leik til góða og geta náð Kings ef þeir vinna hann. Liðin tvö standa best að vígi um sæti í úrslitum en þangað komast tvö efstu liðin. Alpine SG Pipers og Ganges Grandmasters (Anand á fyrsta borði) eru enn með góða mögulega til að blanda sér í baráttuna um tvö efstu sætin með góðum árangri í umferðunum sem eftir eru.

Í daga klárast 7. umferð með tveimur viðureignum og tvær viðureignir fara fram í áttundu umferð.

Nokkrir punktar

  • Alireza Firouzja hefur verið í frábæru formi og hefur unnið Fabiano Caruana, Viswanathan Anand og heimsmeistaranum D. Gukesh.
  • Vishy Anand sigraði Gukesh í spennandi viðureign.
  • Lið eins og PBG Alaskan Knights (með Gukesh og Arjun Erigaisi) hafa átt erfitt og aðeins kraftaverk getur komið þeim í úrslit

Mótið fer fram í hinu glæsilega konungalega óperuhúsi í Mumbai og er streymt beint á Chess.com af heimasíðu mótsins Þetta er fyrsta sinn sem mótið er haldið á Indlandi Áður haldið í Dubai og London.

Taflmennskan hefst kl. 10 í dag og er óhætt að mæla með skemmtilegum útsendingum. Aðeins ein viðureign (3 skákir) fara fram á sama tíma. Seinni viðureignir dagsins hefjast kl. 11:30, 13:00 og 14:30.

Ritstjóri hefur einkar gaman af afar líflegum útsendum Sagar Shah og félögum hans á ChessBase India. Á köflum hreint skemmtisjóv.

- Auglýsing -