(Mynd: Thor Kvakkestad)

Landsliðsmaðurinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson situr nú að tafli í Malasíu þar sem hann tekur þátt í 17th Penang Heritage City Open. 98 keppendur taka þátt á þessu opna móti og er Aleksandr númer 6 í stigaröðinni.

Í fyrstu umferð mætti Aleksandr (Sasha) ungum heimamanni, 13 ára strák og stýrði svörtu mönnunum. Sasha náði snörpum aðgerðum á kóngsvæng og náði að hafa þann unga undir á reynslunni.

Önnur krefjandi skák kom í kjölfarið gegn 16 ára strák frá Singapúr. Sasha hefur þurft að hafa mikið fyrir þessum vinningum, krystallar svolítið mikið skákina í dag að menn þurfa að vinna unga skákmenn sem eru lægri stigalega en getan er!

Næstu þrjá daga eru tvöfaldar umferðir og lýkur mótinu á Þorláksmessu.

- Auglýsing -