Landsliðsmaðurinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson nálgast endamarkið á strembnu móti í Malasíu þar sem hann situr að tafli í 17th Penang Heritage City Open. 98 keppendur taka þátt á þessu opna móti og er Aleksandr númer 6 í stigaröðinni en hefur lent í alltof mörgum kornungum og erfiðum andstæðingum sem hafa strítt honum á mótinu.
Í fyrri skák dagsins náði Sasha að búa til gott ójafnvægi með svörtu, hann fékk drottningu fyrir þrjá létta menn og hvítur greiddi það of dýru verði í peðum. Peð svarts komust á góðan skrið þegar leið á skákina og okkar maður vann.
Seinni skákin var aftur með svörtu og nú lenti Sasha í erfiðri vörn og því miður stýrði Sek með hvítu mönnunum taflinu ansi vel og gaf engan grið.
Lokaumferðin er á morgun, Þorláksmessu og hefur Sasha þá hvítt. Sasha hefur 4,5 vinning.















