Alheimsdeidlin í skák – Tech Mahindra Global Chess League 2025 lauk með á dramatískan hátt í Mumbai á Indlandi í gær, Þorláksmessu. Lið Alpine SG Pipers, undir forystu Fabiano Caruana, vann titilinn með því að sigra tvöfaldan ríkjandi meistara Triveni Continental Kings 2-0 í úrslitunum. Pipers unnu fyrri viðureignina 4-2 með svörtu og síðari 4.5-1.5 með hvítu. Óvænt.
Anish Giri var stjarnan í úrslitunum með því að vinna báðar skákirnar sínar gegn Wei Yi, en einnig unnu Praggnanandhaa og Leon Luke Mendonca mikilvægar skákir. Triveni Continental Kings, með Alireza Firouzja í broddi fylkingar, höfðu ráðið ríkjum í forkeppninni með miklum látum. Gengi Pipers var stígandi og munaði þar ekki síst um að Hou Yifan fór í gang!
Í viðureign um þriðja sætið sigraði PBG Alaskan Knights, með heimsmeistaranum D. Gukesh, lið Ganges Grandmasters (með Viswanathan Anand) á dramatískan hátt, eftir bráðabana þar sem Gukesh vann sína fyrsta skák gegn Anand eftir að hafa orðið heimsmeistari.
Þetta er þriðja tímabilið af Alheimsdeildinni, sem er afar spennandi liðakeppni í atskák með blönduðum liðum karla og kvenna. Alpine SG Pipers brutu aftur veldi Triveni Continental Kings, sem höfðu unnið fyrstu tvö tímabilin. Í lok mótsins var tilkynnt um að fjórða keppnin fari fram í september nk. en óljóst er hvar. Harpa?















