Kampakátir Benedikt og Vignir Vatnar í Skipholtinu í gær.

Kristján Örn Elíasson, alþjóðlegur skákdómari, útvarpsmaður, fyrrverandi varaforseti Skákfélags Grandrokks, formaður Skákfélags Íslands og virkasti skákmaður landsins hefur lengi stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið. Gaman að þessu.

Í gær mættu okkar besti maður, Vignir Vatnar Stefánsson, og félagi hans Benedikt Briem í Skipholtið og ræddu málin við Kristján Örn.

Í kynningu um þáttinn segir:

Vinirnir og samstarfsmennirnir Vignir Vatnar Stefánsson, stórmeistari og þrefaldur Íslandsmeistari í skák árið 2025 og Benedikt Briem næststigahæsta ungmenni landsins eru gestir Kristjáns Arnar. Þeir tala um kennsluvefinn , skákmót í Portúgal, fjölbreytt skákmótahald og margt fleira. Vignir ræðir heimsmeistaramótin í atskák og hraðskák, sem fram fara í Doha í Katar á milli jóla og nýárs, en Vignir verður á meðal keppenda á báðum mótunum.

Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.

- Auglýsing -