Skákþingi Kópavogs lauk í gærkvöldi. Í síðustu umferð skildu Magnús Pálmi Örnólfsson og Sigurbjörn Hermannsson jafnir. Það gaf Gauta Páli Jónssyni tækifæri á að ná Magnúsi að vinningum með sigri á Pétri Úlfari Ernissyni. Magnús endaði efstur á oddastigum.

Keppnin um skákmeistara Kópavogs var æsispennandi. Þegar tveimur skákum var ólokið áttu þrír keppendur möguleika. Þorsteinn Jakob Freyr Þorsteinsson vann Eirík K. Björnsson og þurfti hann að bíða eftir úrslitum síðustu skákarinnar milli Mikaels Bjarka Heiðarssonar og Birkis Hallmundarsonar. Birkir kreisti fram sigur með fádæma seiglu og er Kópavogsmeistari.

 

Úrslitaþjónusta
Skákirnar (lichess)
Myndband frá Tómasi

 

- Auglýsing -