Stigahæstu skákmenn og skákkonur

Vignir Vatnar Stefánsson (2519) er stigahæstur íslenskra skákmanna og Olga Prudnykova (2271) stigahæst skákkvenna. Litlar breytingar urðu á topplistanum í desember.

Ungir og gamlir

Benedikt Briem (2244) er stigahæstur íslenskra ungmenna eftir að Aleksandr Domalchuk-Jonasson telst fór upp úr 20 ára flokknum um áramótin.

Nýir skákmenn komust líka á vizkualdurinn um áramótin. Magnús Örn Úlfarsson (2354) er stigahæstur þeirra en Héðinn Steingrímsson (2502) er stigahæstur skákmanna á vizkualdrinum.

Breytingar

Eina kappskákmót mánaðarins á Íslandi var Meistaramót Skákskóla Íslands. Mestri hækkun þar náði Iðunn Helgadóttir (1840) sem hækkaði um 39 stig.

Fjöldi

Duglegustu skákmenn desember mánaðar tefldu erlendis í mánuðinum. Jósef Omarsson (2051) tefldi bæði í Róm og Barcelona og náði 19 kappskákum. Bróðir hans og móðir tefldu með honum í Barcelona og náðu 10 skákum, eins og Ólafur Hlynur Guðmarsson (1945) sem tefldi á Jótlandi.

- Auglýsing -