FIDE birti í upphafi mánaðar ný alþjóðleg skákstig
Stigahæstu skákmenn og konur
Vignir Vatnar Stefánsson (2529) er stigahæstur þrátt fyrir smá lækkun í mánuðinum. Hann reyndar jók forskot sitt því Héðinn Steingrímsson (2485) í öðru sæti lækkaði meira.
Lenka Ptácníková (2063) er stigahæst íslenskra skákkvenna

Ungir og gamlir
Lítil virkni var á topplistunum hjá ungum og gömlum í mánuðinum. Benedikt Briem (2239) og Héðinn Steingrímsson (2485) leiða flokkana.

Breytingar
Tvær ungar skákkonur hækkuðu mest í mánuðinum, þær Katrín Ósk Tómasdóttir (1544) og Halldóra Jónsdóttir (1571)

Fjöldi
Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson (2402) tefldi langmest í mánuðinum en hann náði 18 kappskákum.

Nýliðar
Fjórir koma nýir inn á lista í mánuðinu. Jón Elías Óskarsson (1690) þeirra stigahæstur.
- Auglýsing -













