Í upphafi árs ákvað ég að hætta að birta mánaðarlegar breytingar á hrað- og atskákstigum. Hraðskákstig sveiflast það mikið að mánaðarlegar breytingar segja okkur ekki mikið og atskák er tefld það lítið að oft var lítið að frétta. Í staðinn koma hálfsárs og ársuppgjör á stigum sem gefa vonandi betri mynd hvert okkar bestu skákmenn eru að stefna.

Hér kemur fyrri hluti hraðskákstiga – í seinni hlutanum sjáum við hverjir eru að hækka mest og hverjir eru búnir að tefla mest.

Stigahæstu skákmenn

Vignir Vatnar Stefánsson (2611) hefur hækkað um 32 stig á árinu og er kominn upp fyrir 2600 stig. Hann heldur góðu forskoti þó flestir af okkar bestu hraðskákmönnum séu að hækka.

Hástökkvari listans er Gauti Páll Jónsson (2324) sem fer úr 28. sæti upp í 17. en Símon Þórhallsson (2334) fór úr 22. upp í 13. sæti.

 

Stigahæstu skákkonur

Olga Prudnykova (2092) fer upp um tvö sæti frá áramótum án þess að tefla skák og er stigahæst íslenskra hraðskákkvenna. Lenka Ptácníková (2091) var nálægt því að ná henni eftir 87 stiga hækkun en vantaði eitt stig í viðbót.

Ungir skákmenn (U20)

Á þessum llista eru miklar sviptingar. Efstu fjórir færast allir um sæti en Ingvar Wu Skarphéðinsson (2228) er stigahæstur eftir 49 stiga hækkun.

Hástökkvarinn á listanum er Anh Hai Tran (1863) sem fer úr 37. sæti og rétt nær inn á topp 20. Haukur Víðis Leósson (1975) fer úr 22. sæti upp í 8.

Vizkualdurinn (S50)

Hér eru litlar breytingar. Efstu þrír óbreyttir en Hannes H. Stefánsson (2445) er stigahæstur á vizkualdrinum. Hástökkvari listans er Áskell Örn Kárason (2150) sem fer úr 22. sæti í það 17.

- Auglýsing -