FIDE birti í dag ný alþjóðleg skákstig. Emil Finnson Fenger hækkaði mest í annars nokkuð erfiðum mánuði hjá stigahærri skákmönnum.

 

Skákmenn og skákkonur

Vignir Vatnar Stefánsson (2540) er stigahæstur íslenskra skákmanna en litlar breytingar urðu á topp 20 listanum. Lenka Ptácníková (2063) er stigahæst skákkvenna þrátt fyrir nokkuð þungan mánuð.

Ungir og gamlir

Benedikt Briem (2239) er stigahæstur ungra skákmanna. Hann jók forskot sitt umtalsvert í mánuðinum þar sem næstu menn áttu erfiðan mánuð.

Héðinn Steingrímsson (2502) er stigahæstur á vizkualdrinum.

Breytingar

Emil Finnson Fenger (1658) sigraði í bikarsyrpu í mánuðinum og hækkaði um 109 stig á meðan Pétur Úlfar Ernisson (1913) var sterkur í áskorendaflokki og hækkai um 98 stig.

Fjöldi

Lenka Ptácníková tefldi bæði í Georgíu og Tékklandi og náði 20 skákum og Gauti Páll tefldi bæði á Hollandi og á Íslandi og náði 16 skákum.

Nýir á lista

Þrír koma nýir inn á lista. Stigahæstur þeirra er Páll Ísak Ægisson með 1622 stig.

  

- Auglýsing -