Hér kemur seinni hluti yfirferðar yfir hraðskákstig á fyrri hluta ársins. Atskákuppgjörið kemur svo í næstu viku.
Mesta hækkun – fullorðnir
Arnar Ingi Njarðarson (1800) og Óskar Víkingur Davíðsson (2121) náðu báðir að hækka um meira en 100 stig á fyrri hluta árs.

Mesta hækkun – börn
Bæði Anh Hai Tran (1863) og Emil Finnson Fenger (1699) náðu að hækka um meira en 200 stig. 11 til viðbótar náðu yfir 100 stiga hækkun.
Flestar skákir
Páll Ísak Ægisson (1583) lét sig ekki vanta á mörg hraðskákmót á önninni og tefldi 285 skákir. Gauti Páll Jónsson (2324) og Anh Hai Tran náðu líka að tefla meira en 200 skákir. Þessir þrír voru í sérflokki í fjölda skáka en ánægjulegt er að sjá að 16 af 20 á topplistanum hækkuðu í stigum, sem bendir til þess að virknin sé að skila sér í bætingu. Greinarhöfundur í 4. sæti er fyrsta undantekningin.












