Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson átti góðan endasprett á alþjóðlegu mótinu á Korsíku, Porticcio Open.  Guðmundur vann í lokaumferðinni og endaði með 6,5 vinning af 9, jafn efstu mönnum en alls voru sjö skákmenn jafnir og efstir. Alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson var með sinn andstæðing í köðlunum en eins og Króatía á HM rétt heltist hann úr lestinni.

Guðmundur Kjartansson að tafli (Mynd: Ómar Óskarsson)

Sigur Guðmundar í lokaumferðinni var sannfærandi. Hann mætti frönskum FM og tefldi Najdorf á dýnamískan hátt. Enn og aftur, meiri kraftur í taflmennsku Guðmundar en oft áður og það skilaði sér í enn einum sigrinum rétt í kringum 30. leik! Fínt mót hjá Gumma!

 

Björn að tafli á Reykjavíkurskákmótinu 2025

Björn mætti stórmeistaranum Sumets með svart. Eitthvað vantaði upp á byrjanataflmennskuna og Björn lenti í smá „köðlum“ framan af skák. Eins og oft áður vann Björn sig inn í taflið og var svo „með’ann“ á einum stað.

45…Dc2! hér hefði verið unnið en Björn lék 45…Rxf2 og hratt. Eftir drottningarleikinn vinnst biskupinn á f2. T.d. 46.De3 Bg5! (mikilvægur millileikur) 47.Dd4 Bh4! 48.Hc8 Dd1! og hvítur ræður ekki við neitt. Bxh4 ekki í boði útaf fráskák riddarans (ástæðan fyrir 46…Bg5! fyrst).

Björn átti líklega góða þráskákmöguleika þrátt fyrir þessa yfirsjón en missti smátt og smátt tökin og stórmeistarinn náði sigr.

Guðmundur endar því með 6,5 vinning og jafn sex öðrum í efsta sæti, fínt mót hjá Guðmundi. Björn endaði með 5,5 vinning og hársbreidd frá því að deila líka efsta sætinu. Hinn þýski Tobias Koelle sem reyndist okkar mönnum svo erfiður varð hæstur á oddastigum og sigurvegari mótsins.

Alls taka rúmlega 50 skákmenn þátt í efsta flokknum sem Guðmundur og Björn eru skráðir til leiks í. Guðmundur er númer 9 í stigaröðinni en Björn númer 11.

- Auglýsing -