Jósef Omarsson er sigurvegari mótsins og skákmeistari TR 2026

FIDE birti ný alþjóðleg skákstig 1. október 2026. Haustmótsmeistarar og Ólympíufarar eru áberandi á listanum þennan mánuðinn.

Stigahæstu skákmenn og skákkonur

Fyrsta borð í opna flokknum á Ólympíumótinu Vignir Vatnar Stefánsson (2534) er stigahæstur íslenskra skákmanna en hann hækkaði um 3 stig á mótinu.

Fyrsta borð í kvennaflokki Lenka Ptácníková (2091) er stigahæst íslenskra skákkvenna en hún hækkaði um 9 stig á mótinu. Allir liðsmenn kvennasveitarinnar hækkuðu í stigum á mótinu.

Ungir og gamlir

Benedikt Briem (2239) er stigahæstur ungra íslenskra skákmanna en forskot hans er aðeins 2 stig eftir frábæran sigur Josefs Omarssonar (2237) á Haustmóti TR.

Héðinn Steingrímsson (2485) er stigahæstur á vizkualdrinum.

Breytingar

Sigurvegarar Haustmótsins hækkuðu mest í mánuðinum en Helgi Fannars Óðinsson (1658) hækkaði um 160 stig með sigri sínum í opna flokknum.

*Hækkun Kristjáns Inga Smárasonar á líklega eftir að færast yfir í atskák þar sem eitthvað skolaðist til við skil á stigum þennan mánuðinn en hann varð atskákmeistari Goðans í þessum mánuði.

Fjöldi

Íslandsmeistarinn Hilmir Freyr Heimisson tefldi 19 kappskákir í mánuðinum, einni fleiri en Helgi Áss Grétarsson tefldi í Búdapest.

Nýliðar

Tveir skákmenn koma nýir inn á lista í mánuðinum. Andrés Kolbeinsson með 1706 stig og Ásta Kristbjörnsdóttir með 1566 stig.

- Auglýsing -