Vinaskákfélagið mun halda glæsilegt skákmót á fæðingardag Friðriks Ólafssonar. Skákmótið verður haldið mánudaginn 26 janúar klukkan 13:00 í Vin Dagsetur á Hverfisgötu 47.

Vinaskákfélagið ætlar að halda þetta mót árlega og verður stórglæsilegur Farandbikar sem heitir “Friðriksbikarinn” sem sá sem vinnur fær nafn sitt skráð á hann.
Þetta er í þriðja sinn sem við höldum þetta mót.

Tefldar verða 6 umf., með 4 mín + 2 sek.

Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.

Skákdómari verður Róbert Lagerman og mótstjóri verður Hörður Jónasson.

Þátttökugjald fyrir fullorðna er 1.500 kr., og 750 kr. fyrir 16 ára og yngri.

Frítt fyrir meðlimi Vinaskákfélagsins.

Glæsileg verðlaun verða á mótinu.

Í ár verðum við með 6 bækur í verðlaun ásamt verðlaunapeningum.

  1. sæti: Áritun á Farandbikar + Gull verðl.pen.
  2. sæti: Silfur verðl.pen.
  3. sæti. Bronse verðl.pen.

Kvennaverðlaun: Gull verðl.pen.

50 ára og eldri: Gull verðl.pen.

16 ára og yngri: Gull verðl.pen.

Stutt hlé verður svo eftir 3 umferðir svo skákmenn geti fengið sér kaffi og veitingar sem best.

Allir velkomnir.

Hægt er að sjá hverjir hafi skráð sig hér:  Friðriksskákmót Vinaskákfélagsins 2026

Skráning er á heimasíðu félagsins: Friðriksskákmót Vinaskákfélagsins 2026 – Vinaskákfélagið

Einnig er hægt að skrá sig á staðnum.

Mætið tímanlega.

Kveðja stjórn Vinaskákfélagsins.

 

- Auglýsing -