FIDE birti ný alþjóðleg skákstig 1. febrúar. Skákþing Kópavogs, 1-7 umferð Skákþings Reykjavíkur og Janus Open töldu til stiga þennan mánuðinn.

 

Stigahæstu skákmenn og konur

Vignir Vatnar Stefánsson (2511) er stigahæsti skákmaður landsins en litlar breytingar urðu á topp 20 listanum. Olga Prudnykova (2271) er stigahæsta skákkona landsins.

Ungir og gamlir

Benedikt Briem (2237) er stigahæstur ungra skákmanna og Héðinn Steingrímsson (2502) er stigahæstur á vizkualdrinum.

Breytingar

Birkir Hallmundarson (1910) hækkaði mest í mánuðinum en þar vegur mest glæsilegur sigur hans gegn Magnúsi Pálma á Skákþingi Reykjavíkur. Hjá stigaháum má benda á 51 stigs hækkun Símons Þórhallssonar (2243) sigurvegara Janus Open.

Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (2042) tefldi 12 skákir í janúar, einni fleiri en Magnús Pálmi Örnólfsson og Sigurbjörn Hermannsson.

 

Nýir á lista

Þrír koma nýir inn á lista í febrúar. Ringaudas Skucas með 1605 stig, Kristian Már Bernharðsson með 1530 stig og Theodór Nóel Schram 8 ára kemur inn á lista með 1464 stig.

- Auglýsing -