Guðrún Fanney og Jóhanna Björg að tafli. Mynd: PRP

FIDE birti ný at- og hraðskákstig 1. janúar. Helstu fréttirnar eru þær að Guðrún Fanney Briem og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir eru orðnar stigahæstu hraðskákkonur Íslands.

 

Atskák

Stigahæstu skákmenn og skákkonur

Helgi Ólafsson (2496) er stigahæstur íslenskra skákmanna í atskák og jók forskot sitt án þess að tefla í desember.

Lenka Ptácníková (2121) er stigahæst íslenskra skákkvenna en Jóhanna forseti (2066) minnkaði forskot hennar með góðum árangri í desember.

 

Ungir og gamlir

Ingvar Wu Skarphéðinsson (2171)stökk á tækifærið sem myndaðist við að Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2287) eltist upp úr ungmennaflokki. Ingvar var fjórði 1. desember en fór alla leið upp í efsta sæti með góðum árangri í desember.

Helgi Ólafsson er stigahæstur á vizkualdrinum.

 

Hraðskák

Stigahæstu skákmenn og skákkonur

Vignir Vatnar Stefánsson (2579) er lang stigahæstur íslenskra skákmanna í hraðskák þrátt fyrir smá lækkun á heimsmeistaramótinu.

Guðrún Fanney Briem (2101) og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (2101) eru jafnar efstar af íslenskum skákkonum eftir góðan desember mánuð. Guðrún Fanney er að ná toppsætinu í fyrsta skipti.

 

Ungir og gamlir

Benedikt Briem (2234) gerði það saman og Ingvar í atskákinni og fór upp úr fjórða sæti í fyrsta með góðum desember mánuði og er stigahæstur íslenskra ungmenna.

Hannes Hlífar Stefánsson (2443) er stigahæstur á vizkualdrinum en Íslandsmeistarinn í hraðskák hækkaði mikið í desember og fór upp í annað sæti.

Breytingar

Þrír komust í 100 stiga klúbbinn í atskák í desember. Iðunn Helgadóttir (1855) hækkaði mest, um 141 stig en Milosz Úlfur Olszewski (1649) og Markús Orri Jóhannsson (1991) hækkuðu líka um meira en 100 stig.

Tristan Fannar Jónsson (1670) hækkaði um slétt 150 stig í hraðskák. Af stigaháum má benda á Breiðabliks þrenninguna Benedikt Briem (88 stig), Arnar Milutin Heiðarsson (58 stig) og Halldór Grétar Einarsson (2158) sem náðu góðri hækkun í desember.

 

Fjöldi

Heimsmeistaramótið í Qatar kom Vigni Vatnari í efsta sæti yfir fjölda atskáka í desember. Arnar Ingi Njarðarson náði heilum 72 hraðskákum í desember, einni fleiri en Jóhann Ingvason.

Nýir á lista

7 koma nýir inn á lista í atskák, Ingi Brjánsson þeirra stigahæstur með 1651 stig.

30 koma nýir inn á lista í hraðskák sem er met síðan ég byrjaði að taka saman þessar tölur. Alexander Lúðvíksson er þeirra stigahæstur með 1795 stig.

 

- Auglýsing -