Sextán manna úrslit Síminn Invitational í netskák héldu áfram í gærkvöld. Félagarnir úr landsliðinu Vignir Vatnar Stefánsson og Aleksandr Domalchuk-Jonasson fóru áfram í 8-manna úrslit, Vignir eftir 4-0 sigur gegn Lenku Ptacnikovu en Aleksandr eftir háspennu viðureign gegn Jóhanni Hjartarsyni sem endaði 4,5-3,5 í bráðabana!
Í fyrri viðureign kvöldsins mættust stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson og stórmeistari kvenna Lenka Ptácníková. Vignir hafði betur 4-0, Lenka lék illa af sér í fyrstu skákinni en skák númer tvö var jöfn og spennandi. Vignir er í ógnar hraðskákformi þessa dagana og gaf engin færi á sér að þessu sinni og vann 4-0.
Seinni viðureignin var eins og áður sagði æsispennandi! Stórmeistarinn Jóhann Hjartarson virtist vera að hafa alþjóðlega meistarann Aleksandr Domalchuk-Jonasson undir í all nokkur skipti en blanda af seiglu Aleksandrs og nokkra afleikja hjá Jóhanni hélt Sasha á lífi og hann náði að hafa sigur í spennandi bráðabana eftir „músarennsli“ hjá Jóhanni í lokaskákinni.
Skákskýringar að þessu sinni voru í umsjón Ingvars Þór Jóhannessonar og Hilmis Freys Heimissonar. Útsendingu kvöldsins má nálgast hér að neðan…
Mótið er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport. Aðrir styrktaraðilar eru Collab, Ljósleiðarinnn og Lengjan.
Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ
Í úrslitakeppninni verða tefld sex skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 3½ vinning. Verði jafnt verður teflt til þrautar. Í úrslitum verður 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.
Verðlaun í aðalkeppninni
- 200.000 kr
- 100.000 kr.
- 25.000 kr
- 25.000 kr.















